Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aug­lýsingafólk: Aug­lýsinga­stjóri RÚV í topp 10

Read Full Article →

Már Másson, ráðgjafi og meðeigandi ráðgjafafyrirtækisins Athygli, er efstur á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar í flokki auglýsingafólks. Hann var með tæplega 2,2 milljónir króna í mánaðarlaun í fyrra miðað við greitt útsvar. Framkvæmdastjóri Athygli, Kolbeinn Marteinsson, er næstefstur á listanum enn var með 1,95 milljónir króna í tekjur á mánuði í fyrra. Friðrik Rafn Larsen, stofnandi vörumerkjastofunnar Brandr, situr í þriðja sæti listans með 1,89 milljónir króna á mánuði. Einar Logi Vignisson, auglýsingastjóri Ríkisútvarpsins, er meðal tíu efstu með 1,78 milljónir króna í mánaðarlaun. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article