„Þetta er bara mjög spennandi. Gaman að fá að spila við svona góð lið,“ sagði Sveindís Jane í samtali við Almarr Ormarsson á æfingasvæði íslenska liðsins á Spáni. Góð lið er vægt til orða tekið. England er sigurvegari síðustu tveggja Evrópumóta og Spánn er heimsmeistari. Spánn og England léku til úrslita á tveimur síðustu stórmótum í kvennaflokki. „Við erum tilbúnar í þetta og það er alltaf gaman að spila á móti svona liðum og sjá hvar við erum miðað við þessi bestu lið. Það verður mikill varnarleikur en okkur finnst það skemmtilegt,“ segir Sveindís. „Við ætlum að verjast vel og nýta svo þær sóknir sem við fáum,“ bætir hún við. Viðtalið við Sveindísi Jane má sjá í spilaranum að ofan. Leikur Íslands og Spánar er á morgun klukkan 18 og er sýndur beint á RÚV.