Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Nútíminn nálgast með nýjum vegi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 22.8.2026 | 14:00 Nútíminn nálgast með nýjum vegi Krappar beygjur og krækt fyrir klettahorn. Þessi vegur fer úr notkun eftir um tvö ár og munar mjög um að losna við þennan leiða krákustíg. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Breytingin sem fylgir þeim vegabótum sem nú er unnið að verður mikil og er byltingu líkust. Í raun er merkilegt til þess að hugsa að þröngir veikbyggðir malarvegir um fjöll og fjörur séu enn í notkun árið 2026. Nútíminn er að nálgast,“ segir Eyþór Guðmundsson flutningabílstjóri; maður þaulkunnugur leiðum á Vestfjörðum. Mikils er vænst vestra af þeim framkvæmdum sem nú eru í gangi þar; vegagerð og þverun fjarða í Gufudalssveit. Samgöngur verða greiðari og suðurleiðin milli Ísafjarðar og Reykjavíkur styttist um 20 kílómetra. Atvinnulíf á svæðinu á mikið undir vegna flutninga á sjávarafurðum og eins má búast við að fleiri ferðamenn leggi leið sína vestur þegar vegir verða betri. Þrautir á veginum Þær samgöngubætur sem unnið er að vestra hafa verið teknar í áföngum. Nokkur ár eru síðan byggð var brú yfir Þorskafjörð og lagður vegur um Teigsskóg. Þar sem honum sleppir taka við Djúpifjörður og utar Gufufjörður, sem nú er verið að þvera. Enn er því farin þekkt leið um þessar slóðir, það er inn Djúpafjörð og hann svo út að vestan. Þar kemur að leiðinni upp Ódrjúgsháls; sneiðingum upp brekkur þar sem vegurinn er í um 15° halla. Á hálsinum vestanverðum eru tvær krappar U-beygjur og einnig þarf að krækja fyrir klettahorn og fleira sem þraut getur verið. Norska verktakafyrirtækið Leonhard Nilsen & Sønner, LNS, sinnir framkvæmdum vestra nú. Þar er í pakkanum að byggja 58 m langa brú yfir Djúpafjörð við Grónes og 130 m langa brú yfir Gufufjörð. Innifalið í verkinu er rif á núverandi 119 m bráðabirgðabrú á Gufufirði ásamt efnisflutningum og gerð grjótvarna. Eyþór Guðmundsson 400 km til Ísafjarðar Brýrnar yfir Gufufjörð verða tvær. Annars vegar hefðbundin tæplega 60 m brú sem nefnd var hér að framan en hin verður 250 metra löng stálbogabrú, sambærileg þeim sem eru yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og Eldvatn í Skaftártungu en þessi mun lengri og hærri. Tilboð í smíði stálbogabrúarinnar verða opnuð í byrjun september. Öllu þessu á svo að vera lokið í október árið 2028 og þar með er kominn beinn og breiður vegur úr borginni vestur á firði, eins og lengi hefur verið unnið að. Leiðin milli Reykjavíkur og Ísafjarðar verður þá rétt um 400 km. Ferðir Eyþórs Guðmundssonar fyrir vestan eru tíðar. Hann keyrir Patreksfjarðarbílinn fyrir Eimskip; fer af stað úr borginni og ekur vestur annan daginn og suður þann næsta. Leggur upp síðdegis og er kominn í áfangastað síðla kvölds. Allt er þetta samkvæmt tímaáætlun sem halda þarf. Allir þurfa sitt: fiskur að vestan þarf að komast til kaupenda syðra og fyrir vestan þarf kost í verslanirnar og fleira því margs þarfnast búið við eins og þar stendur. Og til þess að svo megi vera þarf góða vegi og öruggar lífæðar. Klettsháls er fyrirstaðan „Vegum hér á Vestfjörðum þarf að sýna virðingu og færa gætilega. Ég er á stórum Volvo-kassabíl og áður en ég fer í bröttustu brekkurnar í vetrarfærð set ég stundum keðjur á. Hleð bílinn þá líka í samræmi við aðstæður og hef meiri þunga í kassanum á bílnum en tengivagni. Ég hef aldrei lent í neinu alvarlegu óhappi þau sjö ár sem ég hef verið í þessum ferðum. En það munar mjög um að losna við Ódrjúgsháls,“ segir Eyþór og að síðustu: „Þegar úr Gufufirði er komið og að Skálanesi er ekið áfram inn hinn langa Kollafjörð og í botni hans er farið upp á Klettsháls. Þar liggur vegurinn, klif í hlíðinni, undir klettabelti og á veturna er þar oft skafrenningur. Klettsháls er satt að segja oft helsta fyrirstaðan á leiðinni. Stóra málið er þó auðvitað að senn verður þessi leið öll orðin miklu betri. En þá blasir líka við að halda þarf áfram að gera úrbætur á Vestfjarðavegi; þá ekki síst í Dölunum.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Þetta er skelfilega erfitt“ Sjö látnir eftir árekstur lögreglubíls og fólksbíls Nútíminn nálgast með nýjum vegi Lilja Björg til Securitas Í fyrsta sinn í sögu Manchester United Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Glóandi gull í bekk á HM Vissi að brotaþoli ætti milljónir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi „Gríðarleg skattalækkun“ Mest lesið Í gær Í vikunni Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins ESB fallist ekki á rauðu strikin Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Skúli Mogensen: Ég segi nei! Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Nýjast á mbl.is » „Þetta er skelfilega erfitt“ Sjö látnir eftir árekstur lögreglubíls og fólksbíls Nútíminn nálgast með nýjum vegi Lilja Björg til Securitas Í fyrsta sinn í sögu Manchester United Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Embætti forstjórans ekki auglýst Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Mest lesið Í gær Í vikunni Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins ESB fallist ekki á rauðu strikin Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Skúli Mogensen: Ég segi nei! Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur

Share this article