Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kort: Miklar framkvæmdir um allt land

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 3.6.2026 | 13:30 Miklar framkvæmdir um allt land Vegagerðin verður við störf um land allt í sumar. mbl.is/Eyþór Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Eitt af helstu verkefnum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í sumar er nýbygging Arnarnesvegar á tæplega 2 km kafla milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Nú þegar hefur verið byggð akstursbrú yfir Breiðholtsbraut með aðskildum göngu- og hjólastíg. Í byggingu er göngu- og hjólabrú yfir Arnarnesveg sem tengir stofnstíga milli Reykjavíkur og Kópavogs. Undirgöngin undir Breiðholtsbraut við Suðurfell og Jaðarsel eru nánast búin og önnur eru í smíðum undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg. Hringtorg verða á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og Vatnsendavegar. Stígur fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verður lagður frá Rjúpnavegi yfir í Elliðaárdal og búið er að taka í notkun nýja göngu- og hjólabrú yfir Dimmu. Verklok eru áætluð fyrir árslok 2026. Nú þegar hefur verið byggð akstursbrú yfir Breiðholtsbraut með aðskildum göngu- og hjólastíg. mbl.is/Eyþór Brautir, brýr og landfylling Breikkun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði, milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns, er á lokametrunum. Lengd vegkaflans er um 5,6 km og er þetta eini kaflinn á Reykjanesbraut, frá Ásbraut í Hafnarfirði að Njarðvík, sem ekki hefur verið breikkaður í 2+2 aðskildar akreinar. Búið er að breyta mislægum vegamótum við álverið í Straumsvík, útbúa vegtengingar að Straumi og Álhellu, byggja mislæg vegamót við Rauðamel og útbúa vegtengingu að Straumsvíkurhöfn og dælu- og hreinsistöð austan Straumsvíkur með undirgöngum. Einnig er búið að byggja undirgöng fyrir gangandi og hjólandi rétt austan við álverið sem og eftirlitsstaði fyrir umferðareftirlit. Unnið er að lokafrágangi og áætlað að frágangi ljúki í júní, en tvöföldun Reykjanesbrautar var opnuð fyrir umferð um miðjan desember sl. eða um hálfu ári á undan áætlun. Aðrar helstu framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu eru Ofanbyggðarvegur og hringtorg við Urriðaholt. Unnið er að landfyllingum vegna Fossvogsbrúar en þar mun borgarlína aka yfir. Á Kjalarnesi er unnið í varnargarði til að koma í veg fyrir að sjór og grjót gangi yfir hringveg 1. Hér má sjá yfirlit yfir stærstu útboðsverkefni ársins hjá Vegagerðinni. Kort/mbl.is Sólmyrkvaframkvæmdir Tvö verkefni eru sérstaklega tilgreind á Vestursvæði vegna sólmyrkvans í ágúst næstkomandi. Á Örlygshafnarvegi um Hvallátur er unnið að tæplega tveggja km löngum vegi þar sem umferðin er tekin út fyrir byggðina og vegurinn uppbyggður með bundnu slitlagi með áherslu á umferðaröryggi. Á sama vegi milli Hvalskers og Skápadals verður vegurinn endurnýjaður á fjögurra km kafla með bundnu slitlagi. Á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit er verið að þvera Gufufjörð og Djúpafjörð með þremur brúm sem eru 58 m, 130 m og 210 m, svo og frágangur og klæðing á vegi yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Fyrri tvær brýrnar eru í byggingu en sú þriðja og lengsta verður boðin út á næstunni. Menn Vegagerðarinnar munu hafa í nægu að snúast í sumar. mbl.is/Anton Brink Á Dynjandisheiði í 3. áfanga er unnið að nýjum 7,2 km kafla Vestfjarðavegar og um 0,8 km kafla á Dynjandavegi. Vegurinn er að mestu leyti byggður í nýju vegstæði. Á tengivegum á Vestursvæði er unnið í leiðinni milli Stykkishólms og Svelgsár. Verkið felst í nýbyggingu og endurbótum á rúmlega 4 km kafla á Snæfellsnesvegi. Útboð er áætlað sumarið 2026 en verklok verða haustið 2027. Á Akrafjallsvegi er unnið við hringtorg og undirgöng. Verkið felst í að gera hringtorg, steypa undirgöng, gera göngustíga, setja lýsingu og setja upp vegbúnað við nýtt hringtorg. Um er að ræða samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Veitna, Landsnets og Akraneskaupstaðar. Útboð fer fram í sumar, en verklok eru áætluð haustið 2027. Bætt aðgengi að Ólafsdal Frá Steinadalsvegi sem liggur um Gilsfjörð að Ólafsdal verður vegurinn endurbyggður á 7 km kafla á núverandi vegi frá Vestfjarðavegi að Ólafsdal. Endurbygging núverandi vegar felst í gerð styrktar- og burðarlaga sem og lagningu bundins slitlags. Núverandi vegur er jafnframt breikkaður. Innifalið í verkinu er gerð vegtenginga og allur frágangur. Ekki er um eiginlega styttingu að ræða heldur fyrst og fremst vegabætur til að auka umferðaröryggi og greiðfærni, og efla menningartengda ferðaþjónustu á svæðinu. Á Vestursvæðinu verður einnig unnið að styrkingum og endurbótum á Snæfellsnesvegi milli Brúarhrauns og Hraunsmúla. Á Stykkishólmsvegi við Þingvallaveg er unnið að endurbótum á um 4 km kafla. Á Bíldudalsvegi um Mikladal er unnið við 2. áfanga endurbóta á rúmlega 3 km vegkafla. Á Vestfjarðavegi milli Erpsstaða og Haukadalsár verður endurnýjaður 6 km vegkafli og á Útnesvegi við Ólafsvíkurenni verður unnið við rofvarnir og fyllingar. Þrjár brýr í Þingeyjarsveit Á Norðursvæði á hringvegi 1 við Bárðardalsveg vestri við Öxará verður unnið í ný- og endurbyggingu Bárðardalsvegar vestri á um 3,1 km vegkafla auk byggingar 8,5 m langrar brúar yfir Öxará. Innifalið í verkinu er uppbygging Öxarárvegar sem námuvegar á um 1,2 km kafla auk breytinga á vegamótum við hringveg og lengingar vegriða á brú yfir Hrúteyjarkvísl. Verklok eru áætluð í júlí 2027. Á Norðausturvegi í Þingeyjarsveit, um Skjálfandafljót í Kinn, verður unnið að ný- og endurbyggingu Norðausturvegar á um 10 km kafla. Framkvæmdin er í umhverfismati en fyrirhugað er að byggja allt að þrjár nýjar brýr, yfir Rangá og Skjálfandafljót. Fyrirhugað er að bjóða út í lok árs 2026. Á Norðausturvegi í Þingeyjarsveit, um Skjálfandafljót í Kinn, verður unnið að ný- og endurbyggingu Norðausturvegar á um 10 km kafla. mbl.is/Þorgeir Tengivegir á Norðursvæði sem unnið verður við í sumar eru: Skagavegur milli Harrastaða og Brunanámu, endurbygging Vatnsdalsvegar er fyrirhuguð innan byggðar í Vatnsdal á kaflanum frá hringvegi 1 að Undirfellsrétt. Veglínan fylgir að mestu núverandi vegi, en við Hnjúk og Helgafell er vikið lítillega frá núverandi legu til að bæta umferðaröryggi. Styrkingar og endurbætur á vegum á Norðursvæði verða á þjóðvegi 1 um Öxnadalsheiði, frá toppi Bakkaselsbrekku að Grjótá og á Hvammstangavegi frá hringvegi að Hvammstanga. Hornafjarðarbrúin klárast Af framkvæmdum á Austursvæði má nefna að lokið verður við brú yfir Hornafjörð og nýjar vegtengingar í sumar. Verkið felst í gerð 19 km þjóðvegar, hliðarvega alls 9 km og smíði fjögurra tvíbreiðra brúa, auk byggingar tveggja áningarstaða. Unnið er í lokafrágangi og áætlað að opna veginn formlega í júní. Unnið verður að endurbótum tengivega um Stokksnesveg og er ætlunin að endurbyggja veginn á ríflega 4 km kafla frá ristarhliði nálægt hringvegi að Horni. Útboð verður auglýst í sumar og verklok áætluð haustið 2027. Á Jökuldalsvegi milli Langagerðis og Hákonarstaða verður endurbygging á rúmlega fjögurra km kafla. Á hringvegi 1 um Krossá í Berufirði verður sett niður 12 metra langt ræsi í stað langrar einbreiðrar brúar yfir Krossá auk styrkingar, breikkunar og endurbóta á tæplega 5 km löngum vegkafla. Á hringvegi 1 um Hvolsvöll verður vegurinn endurbyggður og umferðarstýring bætt. Enn fremur á að bæta gönguþveranir og stígatengingar að þeim. Stefnt að útboði í júní. Stefnt er á að verkinu ljúki sumarið 2027. Lokið verður við brú yfir Hornafjörð og nýjar vegtengingar í sumar. mbl.is/Eyþór Hjólandi, gangandi og ríðandi Á Suðursvæði er helst að nefna brú yfir Ölfusá þar sem 3,7 km af þjóðvegi 1 verða færðir út fyrir þéttbýlið á Selfossi auk byggingar nýrrar 330 m langrar stagbrúar yfir Ölfusá og um 1 km af öðrum tveggja akreina vegum. Gerð verða ný mislæg vegamót við hringveg austan Selfoss, undirgöng undir hringveg fyrir gangandi, hjólandi og hestamenn ásamt undirgöngum fyrir bíla og gangandi. Auk umferðar mun brúin bera uppi lagnir veituaðila, rafmagn, ljósleiðara, heitt vatn og kalt. Þeir tengivegir sem unnið verður í eru Hagabraut, Landvegur – Reiðholt, þar sem um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar. Byrjað var á framkvæmdum 2026 og áætlað að þeim ljúki í sumar. Í Biskupstungum verður unnið við Einholtsveg frá Drumboddsstaðavegi að Hrunamannavegi þar sem unnið verður að styrkingu, breikkun og klæðingu á 7,4 km vegkafla. Verklok eru áætluð í ágúst 2027. Í Flóanum verður lögð klæðning á 4,9 km á Gaulverjabæjarvegi og Villingaholtsvegi, auk þess sem endurbyggja á 4,9 km á Önundarholtsvegi. Á Suðursvæði er helst að nefna brú yfir Ölfusá. mbl.is/Anton Brink Víða unnið í styrkingum Á Suðursvæði verður farið í styrkingar og endurbætur á Þorlákshafnarvegi um Læk á Þrengslavegi. Verkið felst í styrkingu, breikkun og klæðingu bundins slitlags. Framkvæmdakaflinn sem um ræðir er um 3,0 km að lengd. Verklok eru áætluð í haust. Á Laugarvatnsvegi við Hjálmsstaði verður vegurinn breikkaður og malbikaður á 3 km kafla. Verkið felst í að jarðvegsskipta fyrir breikkun í köntum, fræsa upp núverandi slitlag á veginum, jafna það út og breikka veg lítilsháttar og keyra að jafnaði 20 cm þykku burðarlagi yfir, endurnýja ræsi og malbika svo yfir. Verklok eru áætluð í ágúst 2026. Undir Eyjafjöllum verður farið í hrunvarnir meðfram hringveginum við Holtsnúp. Skorið er inn í hlíðina á um 360 m kafla og efni notað í lagfæringu vegfláa á um 1.000 m kafla. Hrunvarnir úr svokölluðum gabion-grindum verða reistar á um 300 m kafla. Verklok eru áætluð í ágúst 2026. Við þetta má bæta að brúarviðhald fer fram víða um land auk viðhalds á vitum og í Grindavík verður unnið við sprunguviðgerðir. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þeg

Share this article