Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Arnar hughreystir hlaupara: „Hefðu ekki getað verið mikið verri aðstæður“

Read Full Article →

Austurríkismaðurinn Michael Bidmon og hin eistneska Marion Tibar unnu Reykjavíkurmaraþon karla og kvenna í dag. Arnar Pétursson og Kristjana Pálsdóttir komu fyrst Íslendinga í mark. Aðstæður voru erfiðar þar sem rigning og rok settu strik í reikninginn varðandi tíma hlaupara. Arnar hughreysti hins vegar öll þau sem hlupu í dag. Maraþonið í ár gilti ekki til Íslandsmeistaratitils eins og oft áður, Meistaramót Íslands í maraþoni verður í Reykjavík 10. október. „Þetta gekk í rauninni bara fullkomlega. Ég er í miklu æfingaálagi að undirbúa mig fyrir HM í 100 kílómetrum. Ég ætlaði í rauninni bara að hjálpa Daníel að setja Íslandsmet í sínum aldursflokki í hálfum fyrri hlutanum. Svo ætlaði ég að hlaupa í kringum 100 km ákefðina, kannski aðeins hraðar.“ Þar vísar Arnar til Daníels Freys Magnússonar sem varð fyrstur Íslendinga í hálfmaraþoni. „Ég ætlaði að vera í kringum 2:26–2:27. Það gekk í rauninni fullkomlega. Líkaminn er góður og ég er sáttur með þetta.“ 20. september á Spáni en hann er á leið í æfingabúðir núna fram að hlaupi. „Það hefðu ekki getað verið mikið verri aðstæður. Það var líka mikill vindur og gatan var blaut. Ég ætla bara að segja við alla hlaupara sem hlupu í dag: Í hálfa geturðu tekið 1 til 1 eina og hálfa af tímanum þínum. Í heila geturðu tekið 2 til 3, kannski fjórar mínútur af tímanum ef þú tekur aðstæður inn í reikninginn.“ Viðtalið við Arnar má sjá hér að neðan: Reykjavíkurmaraþonið fór fram í dag. Arnar Pétursson og Kristjana Pálsdóttir komu fyrst Íslendinga í mark. Arnar segir aðstæðurnar ekki getað hafa verið mikið verri og segir hlaupurum dagsins að skafa af tíma sínum. Sigurvegarar í flokkum Karlar - maraþon Michael Bidmon – 02:21:36 Arnar Pétursson – 02:27:02 (+05:26) Silviu Stoica – 02:29:09 (+07:33) Viðtali við Michael Bidmon: Reykjavíkurmaraþonið fór fram í dag. Arnar Pétursson og Kristjana Pálsdóttir komu fyrst Íslendinga í mark. Arnar segir aðstæðurnar ekki getað hafa verið mikið verri og segir hlaupurum dagsins að skafa af tíma sínum. Konur - maraþon Marion Tibar – 02:57:49 Anette Leistad – 02:59:47 (+01:58) Megan Rose Seibel – 03:00:01 (+02:12) Viðtal við Marion Tibar: Reykjavíkurmaraþonið fór fram í dag. Arnar Pétursson og Kristjana Pálsdóttir komu fyrst Íslendinga í mark. Arnar segir aðstæðurnar ekki getað hafa verið mikið verri og segir hlaupurum dagsins að skafa af tíma sínum. Karlar - hálfmaraþon Liam Tilton – 01:07:50 Davíð Freyr Magnússon – 01:10:50 (+03:01) Atli Jasonarson – 01:11:57 (+04:07) Konur - hálfmaraþon Elín Edda Sigurðardóttir – 01:23:38 Hildur Aðalsteinsdóttir – 01:24:50 (+01:12) Rannveig Oddsdóttir – 01:25:31 (+01:54) Karlar - 10 km Baldvin Magnússon – 32:13 Viktor Orri Pétursson – 32:31 (+00:19) Youssef El Fahm – 32:36 (+00:23) Konur - 10 km Íris Dóra Snorradóttir – 37:29 Katla Rut Robertsdóttir Kluvers – 37:31 (+00:03) Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir – 37:43 (+00:15)

Share this article