Karl Gústaf Svíakonungur segist afar sorgmæddur og brugðið yfir því að eitt skiptið enn hafi árás verið gerð í skóla. Einn er látinn og þrír særðir eftir sverðaárás í framhaldsskóla í Fagersta í Svíþjóð í gær. Tveir þeirra sem særðust eru alvarlega meiddir. Í yfirlýsingu á vefsíðu konungsfjölskyldunnar sendir Karl nemendum, foreldrum þeirra, starfsfólki skólans og öllum íbúum Fagersta dýpstu samúðarkveðjur. Hugur hans væri hjá nánasta fólki þeirra sem létust og særðust. Árásarmaðurinn er átján ára og var áður nemandi við skólann. Lögregla skaut hann í fótinn áður en hann var handtekinn. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir líkamsárás. Í maí voru nemendur skólans sendir heim eftir að hótun barst, en ekki liggur fyrir hvort tengsl séu á milli hótunarinnar og árásarinnar í dag. Ekkert bendir til að fleiri hafi verið að verki að sögn lögreglu og að unnið sé að rannsókn málsins. Lögregla var kölluð að skólanum skömmu eftir klukkan tvö að staðartíma. Þá hafði árásarmaðurinn, sem er 18 ára, sært fjölda fólks með sverði. Öðrum skólum í bænum var lokað þegar fréttist af árásinni. Drengirnir tveir sem særðust alvarlega eru undir átján ára aldri. Þeir voru báðir sagðir í stöðugu ástandi en annar þeirra gekkst undir bráðaaðgerð.