Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Launapakki Musks ryður brautina fyrir aðra forstjóra

Read Full Article →

Óvenjulegir launasamningar Elons Musk hafa rutt brautina fyrir gríðarlegar greiðslur til annarra forstjóra fyrirtækja innan S&P 500-vísitölunnar, samkvæmt nýrri rannsókn bandarísku verkalýðssamtakanna AFL-CIO. Þetta kemur fram í frétt Reuters . Þótt Musk, forstjóri Tesla og SpaceX, sé undanskilinn hækkuðu meðalárslaun forstjóra um 21% árið 2025 og námu 22,8 milljónum dala, eða um 2,8 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag. Það er hæsta fjárhæð frá því AFL-CIO hóf mælingar á tíunda áratugnum. Aukninguna má einkum rekja til fleiri risavaxinna launasamninga að fyrirmynd samnings Musks hjá Tesla. Hann gæti orðið allt að einnar billjónar dala virði nái Musk öllum markmiðum. Hluthafar Tesla samþykktu í nóvember hlutabréfatengdan samning sem fyrirtækið mat á 158 milljarða dala. Sé sú fjárhæð talin með námu meðallaun forstjóra S&P 500 340,1 milljón dala. Sjá einnig Hlut­hafar samþykktu launa­pakka Musk Fred Redmond, framkvæmdastjóri AFL-CIO, segir samning Musks hafa breytt viðmiðunum sem stjórnir nota við ákvörðun forstjóralauna. Launamunur forstjóra og almennra starfsmanna jókst jafnframt úr 285-földum árið 2024 í 312-faldan árið 2025, án samnings Musks. Með honum varð munurinn 5.387-faldur. Til samanburðar hækkuðu meðalárslaun bandarískra launamanna um 3% og voru 69.770 dalir í maí 2025. Stjórnir fyrirtækja segja há laun tengd verðmætasköpun fyrir hluthafa. Tillögur um forstjóralaun hlutu að meðaltali 90,6% stuðning hluthafa fram í lok júní. Sérstakir launasamningar hafa þó mætt meiri andstöðu. David Solomon, forstjóri Goldman Sachs, fékk 118,9 milljónir dala og 71% stuðning. Shankh Mitra, forstjóri Welltower, fékk 821 milljón dala samning sem á að ná yfir stærstan hluta næsta áratugar, en aðeins 19% hluthafa studdu hann. Sjá einnig Musk með 16-falt hærri laun en allir hinir 390 for­stjórarnir

Share this article