Um fjörutíu slösuðust lítillega þegar jarðskjálfti af stærðinni 5,8 reið yfir Ibarak-hérað austanvert í Japan klukkan fimm síðdegis að staðartíma. Áhrifa skjálftans varð mjög vart í höfuðborginni Tókýó þar sem truflanir urðu á lestarsamgöngum. Jarðskjálftastofnun Japans sagði skjálftann eiga upptök á 68 kílómetra dýpi og enga hættu á flóðbylgjum. Hún varar við sterkum eftirskjálftum næstu daga. Tilkynnt hefur verið um minni háttar tjón á byggingum í Tókýó og borginni Saitama, steinsnar frá. Ekki hafa borist tíðindi af skemmdum á kjarnorkuverum í héraðinu. Veðurstofan varar við hættu á skriðuföllum enda jarðvegur mjög gljúpur eftir úrhellisrigningu í gær og síðustu daga. Forsætisráðherrann Sanae Takaichi hefur skipað ítarlega rannsókn á því tjóni kunni að hafa orðið og að almenningi verði haldið upplýstum. Í júlílok týndu tugir lífi í jarðskjálfta af stærðinni sjö komma einn í suðvestanverðu Japan.