Mikið var um unglingadrykkju í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt og þurfti lögregla að hafa afskipti af á fjórða tug ungmenna. Yfirlögregluþjónn segir unglingadrykkju að færast í aukana. Flest málin tengd unglingum og drykkju Talsverður erill var hjá lögreglu nýliðna Menningarnótt. Jóhann Karl Þórisson, yfirlögregluþjónn segir meirihluta mála sem bárust á borð lögreglu tengjast hópamyndun ungmenna og unglingadrykkju. „Við höfðum afskipti af einhverjum tugum ungmenna, einhver þrjátíu til fjörutíu ungmenni sem var hellt niður áfengi hjá og haft samband við foreldra. Við leystum upp fjölda af hópum, sem eru hópamyndanir, og stigum inn í ef það voru að byrja stimpingar eða slagsmál,“ segir Jóhann. Tveir í haldi lögreglu vegna hnífaárásar Þá barst lögreglu tilkynning um líkamsárás með hnífum og hnúajárni. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild. Áverkar hans reyndust ekki alvarlegir. Tveir menn um tvítugt eru í haldi lögreglu vegna árásarinnar. Lögregla þurfti einnig að loka tveimur skemmtistöðum í miðborginni vegna fjölda gesta sem þar voru innandyra undir lögaldri. Drykkja unglinga að færast í aukana „Ég man að það kom eitthvað tímabil fyrir nokkrum árum þar sem var mun minna um unglingadrykkju en það virðist eins og það sé að aukast núna,“ segir Jóhann Karl. „Það var alveg urmull af krökkum niðri í bæ og margir af þeim voru undir áhrifum eða að fá sér eða í kringum krakkana sem voru að fá sér. Þannig þetta eru fyrst og fremst foreldrarnir og svo er þetta einhvers konar stemning í unglingahópum núna sem er að kalla á þessa drykkju sem var ekki hérna fyrir nokkrum árum.“ Foreldrar þurfi að vera í góðu sambandi við börnin sín og vita hvar þau eru þegar þau eru ekki heima. „Síðan er þetta skólinn, félagsmiðstöðvarnar og lögreglan, sem fer með samfélagslöggæsluna. Við erum mjög virk í að fara í heimsóknir og hitta fólk, fræða og taka samtalið. En það þurfa allir að leggjast á eitt. Ég held að þetta byrji heima hjá foreldrum og börnunum.“