Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Talsvert um drukkin ungmenni í miðborginni — skemmtistöðum lokað vegna fjölda gesta undir lögaldri

Read Full Article →

Lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af talsvert mörgum ungmennum undir áhrifum áfengis í miðborg Reykjavíkur á menningarnótt auk þess sem tveimur skemmtistöðum var lokað vegna þess fjölda gesta innandyra sem reyndist undir lögaldri. Foreldrum og forráðamönnum var gert að sækja börn sín á lögreglustöð. Þrír voru handteknir í miðborginni grunaðir um líkamsárás með eggvopnum og hnúajárni. Þeir höfðu flúið af vettvangi en fundust fljótlega að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maður sem hafði tvo hnífa í fórum sínum var handtekinn í miðborginni og tveir fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkur. Annar reyndi að efna til slagsmála og hinn streittist á móti og beitti lögreglumann ofbeldi. Sá verður kærður fyrir brot gegn valdstjórninni. Nokkrir voru einnig handteknir fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og þvertaka fyrir að segja deili á sér. Innbrot í Vesturborginni er til rannsóknar, engan sakaði í umferðaróhappi í miðborginni og maður sem datt og slasaðist á rafhlaupahjóli í úthverfi reyndist ölvaður. Fjórir gistu fangageymslur í morgun.

Share this article