Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna árásarinnar í Fagersta

Read Full Article →

Maður sem grunaður er um að hafa drepið einn og sært þrjá í sænskum framhaldsskóla á föstudag hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Sautján ára stúlka var drepin og þrír unglingsdrengir særðir, þar af tveir alvarlega. Liam Nebel er 18 ára fyrrverandi nemandi við skólann. Hann var handtekinn á vettvangi eftir að lögregla skaut hann í fótinn. Hann er grunaður um manndráp og tilraun til manndráps. Aftonbladet hefur eftir lögmanni Nebels að hann gangist við því að forsendur mæti skilyrðum fyrir gæsluvarðhaldi fyrir manndráp en ekki tilraun til manndráps. Rannsóknin enn á frumstigi Lögreglan segir rannsókn árásarinnar enn vera á frumstigi. Áttatíu manns hafa þegar borið vitni og lögregla segir hundrað bíða eftir að gefa sinn vitnisburð. Í umfjöllun Aftonbladet kemur fram að Liam hafi dvalið á fósturheimili um tíma vegna erfiðra aðstæðna á heimili hans. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir líkamsárás. Lögregla var kölluð að framhaldsskólanum Brinnell í Fagersta skömmu eftir klukkan tvö á föstudag. Þá hafði Liam sært fjölda fólks með sverði. Lögregla skaut hann í fótinn áður en hann var handtekinn. Kertum og blómum hefur verið komið fyrir utan framhaldsskólann Brinell í Fagersta. Karl Gústaf Svíakonungur sendi samúðarkveðjur í gær vegna árásarinnar.

Share this article