- What: A new Icelandic fashion brand called Lost Horse was launched
- Impact: No direct security impact
Innlent | Sunnudagsblað | 23.8.2026 | 14:00 | Uppfært 14:32 Nýtt fatamerki með vestrænu ívafi Félagarnir Atli Geir Alfreðsson og Halldór Karlsson. mbl.is/Eyþór Helga Kjaran Birgisdóttir [email protected] Setja bókamerki Vinirnir og hönnuðirnir Halldór Karlsson og Atli Geir Alfreðsson stofnuðu nýverið fatamerkið Lost Horse og selja kúrekahatta, skyrtur og klúta. „Þetta byrjaði eiginlega upphaflega fyrir sjö árum þegar ég og Atli Geir byrjuðum í fatahönnun. Við urðum strax góðir félagar og unnum mikið af verkefnum saman alveg frá fyrsta árinu,“ segir Halldór í samtali við blaðamann. „Við fórum að tala um að einhvern tímann myndum við búa til fatamerki saman á Íslandi, það var alltaf sagt svolítið í gríni en það var alvara þar að baki og okkur langaði alltaf að búa til merki með vestrænu ívafi.“ Halldór segir að undanfarin ár hafi eins konar kúrekabylgja gengið yfir mbl.is/Eyþór Týndi hesturinn Halldór og Atli Geir höfðu rætt hugmyndina á árum sínum í Listaháskólanum og meira að segja fundið nafn á merkið. „Ég átti rauðan pallbíl og var af og til með kúrekahatt svo það var svona kúrekafílingur í manni. Við vorum í þessari kúrekastemningu en vorum samt engir hestakarlar og engir alvöru kúrekar því við áttum ekki hest. Út frá því vorum við oft að grínast með að þennan týnda hest eða lost horse.“ Félagarnir komu til með að halda þessu nafni á merkinu og hafa nú stofnað merkið Lost Horse og selja handgerða kúrekahatta, skyrtur og klúta. Félagarnir voru með „pop-up“ búð við Hafnartorg fyrr í mánuðinum sem Halldór segir hafa gengið ótrúlega vel. „Við innréttuðum rýmið í þessum „vintage-fíling“ sem við erum að vinna með. Við erum mjög innblásnir af Double RL sem er Ralph Lauren-lína sem okkur finnst mjög skemmtileg og þær búðir flottastar.“ Halldór segir að Lost Horse-fötin séu sígildur herraklæðnaður með vestrænu ívafi, innblásinn af „vintage“ stíl. Eitthvað við þennan heim Halldór segir að undanfarin ár hafi eins konar kúrekabylgja gengið yfir. „Eins og ég segi þá byrjuðum við að pæla í þessu fyrir sjö árum. Maður sér næstum því eftir því að hafa ekki byrjað með þetta fyrr því mér finnst þessi bylgja alltaf vera að stækka og stækka. Það er eitthvað við þennan heim sem er svo heillandi og veitir manni innblástur. . Kannski það sé eitthvað við það að vera á hestbaki og úti í náttúrunni sem fólki finnst heillandi í heiminum sem við búum í í dag.“ Halldór segir einnig að kántrítónlist sé sífellt að verða vinsælli og kúrekafílingur í dægurmenningu verði æ sýnilegri. Halldór segir að Lost Horse-fötin séu sígildur herraklæðnaður með vestrænu ívafi. Ljósmynd/Halldór Karlsson Stendur til að opna vefverslun Halldór segir að næstu skref hjá Lost Horse séu að keyra allt á fullt fyrir jólin. Þeir stefni á að auka vöruúrvalið og byrja t.d. að selja gallabuxur og stuttermaboli. Það standi til að opna vefsíðuna losthorsestudios.com á allra næstu dögum þar sem hægt verður að skoða vöruúrvalið og versla vörur. ítarlegt viðtal er við Halldór í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » City búið að jafna - Villa í ömurlegum málum Kínverjar fresta rannsóknarferð til tunglsins Newcastle – Liverpool kl. 15.30, bein lýsing Skoraði gegn stórliðinu Jón Jónsson reif þakið af Fjölskyldu- og húsdýragarðinum Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu „Þetta var óvenjulegur dagur“ Menningarnótt að ná hámarki Mest lesið Í gær Í vikunni Steinn Ármann Magnússon er látinn Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Ölvuð börn í miðbænum: Tveimur skemmtistöðum lokað Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu Halla forseti búin í tánum „Þetta var óvenjulegur dagur“ Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu KEX er hótel í gamla kaupfélaginu Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Hitinn gæti náð 20 stigum fyrir austan Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Óska eftir því að skila lóðum í Vatnsendahverfi Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Bökkuðu bíl á rúðu og stálu lyfjum Undirfyrirsögn rengd Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Steinn Ármann Magnússon er látinn Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Embætti forstjórans ekki auglýst Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Nýjast á mbl.is » City búið að jafna - Villa í ömurlegum málum Kínverjar fresta rannsóknarferð til tunglsins Newcastle – Liverpool kl. 15.30, bein lýsing Skoraði gegn stórliðinu Jón Jónsson reif þakið af Fjölskyldu- og húsdýragarðinum Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Selenskí hafnar öllu tali um kosningar Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Halla forseti búin í tánum Erfiðast að missa sjúklinga Mest lesið Í gær Í vikunni Steinn Ármann Magnússon er látinn Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Ölvuð börn í miðbænum: Tveimur skemmtistöðum lokað Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu Halla forseti búin í tánum „Þetta var óvenjulegur dagur“ Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu KEX er hótel í gamla kaupfélaginu Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Hitinn gæti náð 20 stigum fyrir austan Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Óska eftir því að skila lóðum í Vatnsendahverfi Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Bökkuðu bíl á rúðu og stálu lyfjum Undirfyrirsögn rengd Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Steinn Ármann Magnússon er látinn Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Embætti forstjórans ekki auglýst Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna