Japanska skómerkið Onitsuka Tiger hefur notið mikilla vinsælda að undanförnu og ferðamenn í Tókýó sækja í verslanir vörumerkisins. Sumir bíða í röðum eftir að komast inn og margir fara þaðan með fleiri en eitt par. Sala Onitsuka Tiger jókst um 36% á fyrstu sex mánuðum ársins og nam 89,5 milljörðum jena, eða um 574 milljónum dala. Vinsældir retro og Y2K-tískunnar hafa einnig hjálpað Onitsuka Tiger. Skórnir eru léttir og með klassísku útliti sem hefur fallið vel í kramið hjá yngri kynslóðum. Tengingin við Kill Bill: Volume 1 frá 2003 er enn sterk. Uma Thurman klæddist gulum og svörtum Onitsuka Tiger-skóm í myndinni og margir þekkja vörumerkið þaðan. Uma Thurman í skóm frá Onitsuka Tiger. Vinsældirnar hafa skilað sér í afkomu Asics, sem á Onitsuka Tiger. Hagnaður Asics jókst um tæplega 50% á fyrstu sex mánuðum ársins. Asics tilkynnti í júní að Onitsuka Tiger yrði gert að sjálfstæðu dótturfélagi innan samstæðunnar. Markmiðið er að flýta fyrir ákvörðunum og styðja við áframhaldandi vöxt vörumerkisins. Onitsuka Tiger hefur verið að stækka starfsemi sína utan Japan og hefur opnað flaggskipaverslanir í borgum á borð við London, París, Mílanó og Barcelona. Í Bandaríkjunum er stefnt að opnun nýrrar stórverslunar í Los Angeles snemma á næsta ári.