21. umferð Bestu deildar karla í fótbolta lauk með toppslag KR og Víkings í Vesturbæ í kvöld. Víkingar hafa verið nokkuð öruggir á toppi deildarinnar og gátu með sigri stigið skrefi nær Íslandsmeistaratitlinum, KR-ingar sátu í þriðja sæti fyrir leikinn en gátu hoppað upp fyrir Fram og minnkað forskot Víkinga niður í fimm stig tækist þeim að vinna leikinn. Dagurinn byrjaði ekki vel í Vesturbænum því stuðningsfólk Víkings hafði í skjóli nætur málað varamannaskilti og stúkuna á KR-vellinum rauða. Skemmdarverkin settu talsvert svartan blett á annars góða stemmingu því fjölmennt var í stúkunni í kvöld. Liðin létu áhorfendur þó bíða eftir marki talsvert lengi því það kom ekki fyrr en í uppbótatíma. Ármann Ingi Finnbogason sýndi þá frábæra takta og þrumaði boltanum í netið fyrir Víkinga, 1-0. Allt leit út fyrir að mark Ármanns Inga myndi reynast sigurmarkið en KR-ingar höfðu ekki sagt sitt síðasta og á síðustu sekúndu leiksins tókst Arnóri Ingva Traustasyni að stanga boltann í netið og tryggja Vesturbæingum jafnteflið. KR og Víkingur mættust í toppslag Bestu deildar karla í kvöld. Eftir markalausar 90 mínútur skoruðu bæði lið í uppbótatímanum og lokatölur 1-1. Arnór Ingvi var ánægður með að hafa náð að skora jöfnunarmarkið úr því sem komið var. Leikurinn hafi verið jafn og frekar lokaður þrátt fyrir færi á báða bóga. „Við vorum mjög einbeittir og erum búnir að vera alla vikuna. Okkur er búið að hlakka til og frábært að ná að fylla völlinn og gott betur en það. Góður dagur og gott að ná stigi úr því sem komið var.“ KR og Víkingur mættust í toppslag Bestu deildar karla í kvöld. Eftir markalausar 90 mínútur skoruðu bæði lið í uppbótatímanum og lokatölur 1-1. „Við klikkuðum aðeins á dekkningunni þarna undir restina og út úr því kemur þetta mark sem jafnar leikinn,“ sagði markaskorarinn Ármann Ingi í viðtali eftir leik. Hann var ánægður með innkomu sína í leikinn en hefði þó viljað halda út eftir að hafa skorað 1-0 markið. „Mér fannst leikurinn frekar jafn. Þetta var dálítið ping-pong einhvern veginn en við áttum að gera betur og vinna þennan leik.“ KR og Fram eru nú jöfn að stigum í öðru og þriðja sæti deildarinnar með 44 stig en Víkingur er með átta stigum meira í toppsætinu. Síðasta umferð fyrir deildarskiptinguna verður spiluð um næstu helgi en í kjölfarið verður leikið í efri og neðri hluta.