Evrópumóti karla í áhaldafimleikum lauk í dag með liðakeppninni. Ríkjandi meistarar fengu samkeppni frá nýrri, en þó kunnuglegri átt. Bretar urðu Evrópumeistarar í fyrra líkt og 2022 en það var fyrsta árið sem Rússum var bannað að keppa vegna innrásarinnar í Úkraínu. Rússland fékk aftur þátttökurétt í ár en Króatar, sem héldu mótið, leyfðu þeim þó ekki að keppa undir eigin fána. Það voru Bretar sem byrjuðu best í dag og voru snemma komnir með fimm stiga forskot á Rússa sem gáfust þó ekki upp og söxuðu hægt og rólega á forskotið með glæsilegum æfingum. Bretar gerðu þó sitt og enduðu á að vinna með samtals 246,728 í einkunn, einungis 0,570 hærra en Rússar sem fengu silfur. Svisslendingar urðu svo í þriðja sæti, rúmum fjórum stigum á eftir Rússlandi.