Evrópumeistarar í liðakeppni kvenna í áhaldafimleikum voru krýndir í Zagreb í Króatíu í dag þegar síðasta grein Evrópumóts kvenna fór fram. Átta efstu liðin úr forkeppninni tryggðu sér sæti í úrslitunum. Rússnesku fimleikakonurnar, sem keppa á mótinu undir hlutlausum fána, komu með hæstu einkunnina úr forkeppninni inn í úrslit dagsins og voru því sigurstranglegar. Rússneska liðið steig varla feilspor í æfingum sínum í dag og uppskar að lokum nokkuð öruggan sigur með 165,430 stig samanlagt. Ríkjandi Evrópumeistararnir frá Ítalíu urðu í öðru sæti með 161,796 stig og Frakkland í því þriðja með 118,631 stig eftir harða baráttu við lið Þýskalands og Bretlands. Keppni dagsins var í beinni útsendingu á RÚV sem sjá má hér. Rússland stóð uppi sem Evrópumeistari í liðakeppni kvenna í áhaldafimleikum í dag eftir fimm ára fjarveru frá EM. Rússinn Angelina Melnikova vann fimm verðlaun á mótinu og hin 16 ára Elena Colas frá Frakklandi vakti mikla athygli. Fyrsta mót Rússa í 5 ár og Melnikova með 5 verðlaun Hin reynslumikla Angelina Melnikova fór fyrir sigurliðinu og kórónaði þar með einstaklega glæsilegt Evrópumót. Melnikova varð Evrópumeistari í fjölþraut á fimmtudag og bætti öðru gulli við í stökki á laugardag. Þá vann hún brons bæði á jafnvægisslá og í gólfæfingum áður en liðsgullið bættist við í dag. Melnikova fer því frá Zagreb með fimm verðlaun, þrjú gull og tvö brons, og sem sigursælasta fimleikakona mótsins. Sigurinn markar jafnframt endurkomu rússneskra fimleikakvenna á Evrópumótið. Rússneskir keppendur höfðu ekki tekið þátt í EM í áhaldafimleikum í fimm ár en fengu að þessu sinni að keppa undir hlutlausum fána. 16 ára Colas óvænt stjarna Ítalir urðu að sætta sig við silfrið eftir að hafa verið ráðandi í liðakeppni Evrópumóta kvenna undanfarin ár. Frakkar tóku bronsið og þar var hin 16 ára Elena Colas enn á ný í sviðsljósinu. Hún hefur verið ein af óvæntu stjörnum mótsins. Colas varð Evrópumeistari á jafnvægisslá á laugardag, tók silfur í gólfæfingum og brons í fjölþrautinni. Hún lýkur því sínu fyrsta EM í fullorðinsflokki með fern verðlaun. Karlarnir næstir Þar með lauk keppni kvenna á Evrópumótinu í Zagreb. Karlarnir taka við keflinu í sömu höll á miðvikudag og keppa fram á sunnudag. Forkeppnin hefst á miðvikudag og Ísland mun þar eiga fulltrúa. Beinar útsendingar frá EM karla verða á RÚV frá og með næsta föstudegi.