Það var heljarinnar stemning í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt í gær þrátt fyrir að veður hafi ekki verið með besta móti. Ari Páll Karlsson, fréttamaður og ljósmyndari RÚV, var á svæðinu og fangaði stemninguna á filmu. Stemning í Hörpu Það var margmenni í Hörpu þar sem var fjölbreytt dagskrá, tónleikar og dans. Gjörningur í Hafnarhúsinu Mörg gerðu sér ferð í Hafnarhúsið, Listasafn Reykjavíkur. Þar voru sýningar og börn gátu tekið þátt í sérstöku listaverkabingói. Til viðbótar gátu gestir tekið þátt í verki Karinar Sander, Fólk á steinstöplum. Fólk í miðborginni Veðrið var kannski ekki með besta móti í gær. Þó er ekki að sjá annað en að fólk hafi verið í góðum gír! Hér koma nokkrar ljósmyndir héðan og þaðan úr miðborginni. Tónaflóð Rásar 2 Fjöldi fólks sótti Tónaflóð á Arnarhóli þar sem fram komu JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm auk fleiri gesta.