Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Menningarnótt tekur yfir Reykjavík

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 22.8.2026 | 8:58 Menningarnótt tekur yfir Reykjavík Fólk er hvatt til að koma gangandi, hjólandi eða með almenningssamgöngum. Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Ýmsir viðburðir og skemmtanir fara fram í miðborg Reykjavíkur í dag í tilefni Menningarnætur. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri setur hátíðina formlega klukkan hálfeitt á Klapparstíg. Fjölbreytt dagskrá verður víða um miðborgina frá morgni til kvölds, þar á meðal Reykjavíkurmaraþon, tónleikar, dans, listsýningar, útikarókí og fjölskylduviðburðir. Útlit er fyrir blauta Menningarnótt á höfuðborgarsvæðinu en búist er við um tíu millimetra úrkomu yfir daginn. Skýjað og þungbúið verður og hiti 10 til 11 stig. Menningarnótt lýkur klukkan 22 með flugeldasýningu. Umfangsmiklar götulokanir eru í gildi vegna hátíðarinnar og eru gestir hvattir til að koma gangandi, hjólandi eða með almenningssamgöngum í miðborgina. Frétt af mbl.is Stærsta Menningarnótt til þessa Frá Menningarnótt í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Rúmlega 15 þúsund hlauparar Rúmlega 15 þúsund manns eru skráðir til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu. Fjórar vegalengdir eru í boði: maraþon, hálfmaraþon, 10 km hlaup og skemmtiskokk. Ræst er í öll hlaupin frá Háskóla Íslands. Í gærmorgun höfðu safnast um 210 milljónir króna í áheitum vegna hlaupsins, um 15 milljónum meira en á sama tíma í fyrra. Alls söfnuðust um 250 milljónir króna í fyrra og gera forsvarsmenn hlaupsins ráð fyrir að svipuð upphæð safnist í ár. Frímann Ari Ferdinandsson, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, segir að víða verði lokað fyrir umferð á höfuðborgarsvæðinu vegna hlaupsins og megi gera ráð fyrir töluverðum umferðartruflunum frá klukkan átta í morgun til þrjú síðdegis. Vesturbærinn lokast tímabundið á meðan hlauparar fara um svæðið og einnig verður lokað á Granda, Sæbraut og víða í miðborginni. Spáð er rigningu í Reykjavík í dag en Frímann segir aðstæður engu að síður góðar til hlaupa. „Þetta er frábært hlaupaveður en kannski ekki jafnmikið skemmtiskokk fyrir þá sem vilja fara út að hlaupa og njóta stemningarinnar í góða veðrinu. Stemningin verður því aðeins öðruvísi í rigningunni,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Tónlist verður fyrirferðarmikil á Menningarnótt. Tónaflóð Rásar 2 fer fram á Arnarhóli þar sem meðal annars koma fram JóiPé og Króli, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr, Páll Óskar og Benni Hemm Hemm. Bylgjan heldur jafnframt upp á 40 ára afmæli sitt með tónleikum í Hljómskálagarðinum. Þar koma meðal annars fram Birgitta Haukdal, Friðrik Dór, Stefán Hilmarsson, Á móti sól og FM95BLÖ. DJ Margeir verður með MOMENT á Klapparstíg og rennur styrkur frá viðburðinum í ár til Minningarsjóðs Bryndísar Klöru. Heiðursgestur Menningarnætur í ár er Skógræktarfélag Reykjavíkur, sem fagnar 125 ára afmæli. Af því tilefni verður sérstök dagskrá í Ráðhúsinu. Ókeypis strætóferðir að lokum Aukin tíðni verður á flestum leiðum strætó yfir daginn og ókeypis skutlur ganga milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju frá klukkan sjö til rúmlega 23. Þeir sem koma á bíl eru hvattir til að leggja við Laugardalshöll og nýta ókeypis skutlurnar þaðan. Nýjung í ár er að skutlurnar koma einnig við á Njarðargötu frá klukkan sjö til 12 vegna Reykjavíkurmaraþonsins. Strætó hættir akstri á almennum leiðum klukkan hálftíu og verða þá allir tiltækir vagnar sendir að Sólfarinu við Sæbraut. Gert er ráð fyrir að vagnarnir verði 70 til 80 talsins. Frá klukkan 22 til 23 verður gestum ekið þaðan endurgjaldslaust í öll hverfi höfuðborgarsvæðisins. Frétt af mbl.is Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fékk lögregluaðstoð við að komast út úr bílnum Handtóku rússneskan huldumann Verður leikmaður Manchester United Aðsend grein: Eyjar, ystu svæðin, sérlausnir og undanþágur Pistill: Heimanámsaðstoð á bókasöfnum Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sjávarafurðir 40% af útflutningi Vissi að brotaþoli ætti milljónir „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Embætti forstjórans ekki auglýst Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Skúli Mogensen: Ég segi nei! Gera allt til að finna farangur Ásgeirs ESB fallist ekki á rauðu strikin Lögreglan rannsakar líkamsárás í Reykjavík 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Nýjast á mbl.is » Fékk lögregluaðstoð við að komast út úr bílnum Handtóku rússneskan huldumann Verður leikmaður Manchester United Aðsend grein: Eyjar, ystu svæðin, sérlausnir og undanþágur Pistill: Heimanámsaðstoð á bókasöfnum Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meta möguleika á leit að Lúðvík Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Mest lesið Í gær Í vikunni Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Embætti forstjórans ekki auglýst Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Skúli Mogensen: Ég segi nei! Gera allt til að finna farangur Ásgeirs ESB fallist ekki á rauðu strikin Lögreglan rannsakar líkamsárás í Reykjavík 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur

Share this article