Sýn og Ásar, móðurfélag Símans, tilkynntu í kvöld um að félögin hefðu ákveðið að falla frá kaupum Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. „Eftir viðræður aðila í kjölfar áreiðanleikakönnunar er ljóst að aðilar munu ekki ná saman um viðskiptin. Því hefur verið ákveðið að falla frá viðskiptunum,“ segir í tilkynningu Ása til Kauphallarinnar. Í mars síðastliðnum tók stórn Sýnar ákvörðun um að ganga til til einkaviðræðna við Símann á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Sjá einnig Síminn að kaupa vef- og útvarpsmiðla Sýnar Heildarvirði (e. enterprise value ) í viðskiptunum samkvæmt skilmálaskjali hljóðaði upp á 5.250 milljónir króna. Í tilkynningu sem Sýn sendi frá sér í kvöld kemur fram að frestur samkvæmt skilmálaskjalinu til að ljúka gerð endanlegs kaupsamnings og annarrar nauðsynlegrar skjalagerðar sé nú liðinn án þess að kaupsamningur hafi verið undirritaður. „Samkomulag um einkarétt Ása til samningaviðræðna er þar með fallið niður og samningaviðræðum lokið. Sýn hefur uppfyllt forsendur skilmálaskjalsins, þar á meðal forsendur fyrir umsömdu kaupverði er lúta að tekjum og rekstrarafkomu einingarinnar.” Sýn segir að vefmiðlar og útvarpsstöðvar félagsins séu öflugar einingar í góðum rekstri og muni áfram styðja við kjarnastarfsemi þess.