Sýn og Ásar, móðurfélag Símans, tilkynntu í gærkvöldi um að félögin hefðu ákveðið að falla frá kaupum Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása, segir í tilkynningu sem félagið sendi á fjölmiðla í hádeginu að stjórnendur félagsins hafi unnið undanfarna mánuði með stjórnendum Sýnar og ráðgjöfum félaganna að áreiðanleikakönnun og viðræðum í samræmi við þau áform sem voru tilkynnt í mars. „Niðurstaða viðræðna var sú að ljúka ekki viðskiptunum. Eðli málsins samkvæmt er ekki sjálfgefið að viðræður um kaup endi með kaupsamningi, en efnisatriði ferlisins eru háð trúnaði og verða ekki reifuð nánar,“ segir María Björk. „Við þökkum stjórn og stjórnendum Sýnar fyrir uppbyggilegar viðræður og óskum þeim velfarnaðar í áframhaldandi störfum.“ Í mars síðastliðnum tók stórn Sýnar ákvörðun um að ganga til til einkaviðræðna við Símann á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Heildarvirði (e. enterprise value) í viðskiptunum samkvæmt skilmálaskjali hljóðaði upp á 5.250 milljónir króna. Í tilkynningunni segir María Björk að Ásar geri enn ráð fyrir miklum vexti á næstunni. „Hluthafafundur samþykkti sl. fimmtudag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf., en í júlí varð Greiðslumiðlun Íslands formlega hluti samstæðunnar með tilheyrandi sóknarfærum í sameinaðri fjártæknistarfsemi. Þá eru kaup á Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands til umfjöllunar hjá Samkeppniseftirlitinu. Loks má nefna að þrátt fyrir mikinn vöxt samstæðunnar standa rekstur, vörumerki og þjónusta Símans óhögguð. Síminn verður 120 ára í vikunni en þá verður haldið upp á áratuga sögu af uppbyggingu og rekstri fjarskiptainnviða á Íslandi, sem einkennist af frumkvöðlastarfi, trausti og öryggi í rekstri.“