Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þjálfarateymi Víkings hljóp til styrktar Ingvars

Read Full Article →

Þjálfarateymi Víkings hljóp í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Ingvari Jónssyni, markverði liðsins, sem greindist með krabbamein fyrr á árinu. Hér er rætt við Sölva Geir Ottesen þjálfara en þeir hlupu hálfmaraþon. „Ég hef aldrei hlaupið svona mikið áður. Þetta verður bara að koma í ljós. Við byrjum á rólegu tempói og sjáum hvernig þetta fer. Ég er ekkert smeykur við hlaupið sjálft. Ég er bara smeykur við dagana eftir,“ sagði Sölvi. Teymið náði að hlaupa á undir tveimur tímum. „Þetta var erfitt. Það hjálpaði manni að hugsa um alla þá sem er verið að hlaupa fyrir, erfiðleikana sem þau eru að ganga í gegnum. Það hjálpaði manni að bíta á jaxlinn. Það voru lítil hnévandamál. En það af hverju við erum að gera þetta kom manni í gegnum vandamálið.“

Share this article