Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Förum ekki að fagna fyrr en þetta er klárt“

Read Full Article →

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir liðið hafa unnið sér inn góða stöðu í Bestudeildinni. Þó sé ekki tímabært að fara að fagna titli. Víkingur getur orðið Íslandsmeistari um helgina, svo tekur við þriggja vikna landsleikjahlé. Víkingur náði 9 stiga forystu í deildinni með sigri á Keflavík í fyrstu umferð efri hluta Bestudeildarinnar. Víkingar hafa aðeins tapað einum leik í deildinni í allt sumar og Sölvi Geir segist alveg finna hið kunnuglega titlahungur. „Það má alveg segja það. Við höfum lent í þessu áður, líka í fyrra. Þú fannst að menn stigu á næsta level; það varð meiri einbeiting, það varð meiri drifkraftur og samstaða milli leikmanna,“ segir Sölvi. Honum fannst sérstaklega gaman að sjá hvað allt lið hans gladdist yfir marki Róberts Orra Þorkelssonar gegn Keflavík. Róbert Orri hefur átt aðeins á brattann að sækja í sumar eftir meiðsli og viðbrögð leikmanna glöddu Sölva mikið. „Þeir hlaupa allir til hans og eru skælbrosandi og fagna allir með honum og það er mjög sterkt og gaman fyrir mig að sjá þetta, samstöðuna í liðinu,“ sagði Sölvi. Geta klárað titilinn á laugardag „Við verðum samt líka að passa okkur að fara ekki fram úr okkur sjálfum.“ Þrátt fyrir að fyrstu umferð efri hlutans sé ekki lokið geta Víkingar orðið meistarar um helgina. Fram spilar við Breiðablik í kvöld og tapi Fram stigum getur Víkingur klárað titilinn gegn KR í Frostaskjóli á laugardag. Vinni Fram í kvöld er forskot Víkings 8 stig og 12 stig í pottinum og þá getur titillinn unnist á sunnudag. Til að það gerist þarf Víkingur að vinna KR og Fram svo að tapa stigum gegn ÍA á sunnudag. Sölvi vill þó ekki fara svo langt í sínum pælingum strax. „Ef við förum að hugsa of mikið hvað getur gerst fram í tímann og svoleiðis, það getur dregið úr einbeitingunni á leikinn sjálfan, sem skiptir mestu máli.“ „Þú vilt reyna að ná mér þangað??“ Eftir komandi helgi fer deildin hér heima í frí vegna landsleikja. Landsleikjahléin hafa lengst og spilar karlalandsliðið fjóra leiki í sama glugganum. Það þýðir að næsti leikur Víkings eftir þann á laugardag er ekki fyrr en 11. október. Sölvi segir fríið vissulega langt, sérstaklega fyrir lið sem eru á góðu róli. Það sé þó ekkert hægt að pæla í því núna, landsleikjahléin koma bara. Hann segir líka að það sé kominn tími á smá hlé. „Við fáum, þannig séð, kærkomið mini frí fyrir okkur. Við erum búnir að vera að djöflast núna og mikið álag á hópnum og Víkingarnir kannski sáttastir við að fá þetta frí. Þetta er ekki bara líkamlegt álag, þetta er andlegt álag líka.“ „Svo lengi sem það er stærðfræðilegur möguleiki að eitthvað annað lið getur náð okkur þá förum við ekki að fagna neitt og við förum ekki að fagna fyrr en það er klárt.“ Eins og kom fram hér að ofan vill Sölvi stíga varlega til jarðar hvað titilinn varðar. Aðspurður hvort það væri ekki skemmtilegra að fara í fríið sem Íslandsmeistari sagði hann: „Þú vilt reyna að ná mér þangað?? Jújú, í draumaheimi, ef við hugsum um það, auðvitað væri það gaman að geta klárað þetta. En eins og ég segi verðum við að passa okkur á að fara ekki fram úr okkur sjálfum; það er verkefni fyrir framan okkur sem við þurfum að klára. Svo lengi sem það er stærðfræðilegur möguleiki að eitthvað annað lið getur náð okkur þá förum við ekki að fagna neitt og við förum ekki að fagna fyrr en það er klárt.“ Geta jafnað 44 ára gamalt afrek Víkingar hafa verið ákaflega sigursælir á liðnum árum. Landi liðið titlinum í ár verður það í fjórða sinn á síðustu sex leiktíðum sem Víkingur verður meistari. Núna getur liðið þó gert það sem engu liði hefur tekist síðan 2018, og Víkingi ekki síðan 1981, og það er að verja Íslandsmeistaratitilinn. „Það þýðir rosalega mikið. Það er ekkert gefið að vinna titil ár eftir ár. Þú ert með ákveðið skotmark á bakinu eftir að hafa orðið Íslandsmeistari. Þú ferð í Evrópukeppnina og það er mikið álag, þannig að þetta er mjög krefjandi.“ „Við höfum unnið okkur inn mjög góða stöðu, sem við erum í núna. Leikmenn hafa þroskast milli ára, það hafa komið nýir leikmenn með nýtt blóð inn í þetta. Allir í kringum félagið hafa líka tekið höndum saman og reynt að lyfta þessu á næsta þrep, sem er mjög mikilvægt þegar þú ert búinn að vinna, að fara ekki í sama far,“ segir Sölvi Geir og slær svo enn á ný varnaglann: „Eins og ég segi: the job's not done. Það er hellingur eftir en við erum vissulega búnir að koma okkur í góða stöðu og við getum verið stoltir af því, en við þurfum að halda áfram.“

Share this article