Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Ætlar ríkisstjórnin að láta tækifæri morgundagsins renna hjá?

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 24.8.2026 | 5:30 | Uppfært 9:02 Ætlar ríkisstjórnin að láta tækifæri morgundagsins renna hjá? Heimssýn Erna Bjarnadóttir hagfræðingur er í stjórn samtakanna. Morgunblaðið/María Matthíasdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu: Í krafti fullveldis síns hefur Ísland tækifæri til að gera viðskiptasamninga við ríki um allan heim. Fríverslunarsamningur Íslands og Kína er gott dæmi um það. Undirbúningur hófst árið 2006 og formlegar samningaviðræður í apríl 2007. Í kjölfarið fóru fram fjórar samningalotur, sú síðasta í apríl 2008, en eftir það lágu efnislegar viðræður ríkjanna niðri í meira en fjögur ár. Hvers vegna? Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur setti Evrópusambandið í forgang. Þegar á þessum tíma fór dýrmætur tími forgörðum, þótt framkvæmdastjórn ESB hafi síður en svo farið mjúkum höndum um Ísland: fyrst var reynt að þrýsta á landið að samþykkja tvo óhagstæða og lagalega órökstudda Icesave-samninga; síðar var jafnvel reynt að knýja landið í greiðsluþrot sem fullvalda ríki. Fimmta samningalotan við Kínverja fór fram í Reykjavík 18.-20. desember 2012. Síðasta ríkjaráðstefnan í aðildarviðræðum Íslands við ESB var haldin í Brussel 18. desember sama ár. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar virðist því sem endurupptaka efnislegra fríverslunarviðræðna við Kína hafi fallið saman við það þegar aðildarviðræðunum við ESB lauk í reynd. Sjötta samningalotan við Kína fór fram í janúar 2013. Hinn 28. janúar 2013 vann Ísland stærsta sigur í dómsmáli í sögu landsins þegar EFTA-dómstóllinn dæmdi Íslandi í vil í Icesave-málinu. Fríverslunarsamningur Íslands og Kína var undirritaður 15. apríl sama ár. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var síðan felld í alþingiskosningunum 27. apríl 2013. Fyrir Ísland var markaðsaðgangur fyrir fisk og aðrar sjávarafurðir helsta forgangsmálið. Ísland flytur meðal annars inn bíla og vélar, fatnað og skó, tölvur, rafeinda- og fjarskiptabúnað og fjölbreyttan annan varning frá Kína. Fríverslunarsamningurinn var jafnframt mikill pólitískur sigur. Fríverslunarsamningur Sviss og Kína tók gildi árið 2014. Hann var hluti af markvissri stefnu Sviss um að byggja upp eigið net viðskiptasamninga sem fullvalda ríki utan Evrópusambandsins. Sviss heldur áfram Hinn 20. ágúst 2026 lauk Sviss viðræðum við Kína um verulegar endurbætur á fríverslunarsamningnum. Þegar hinn endurbætti samningur tekur gildi munu 99,8% af núverandi útflutningi Sviss geta farið tollfrjálst inn á kínverska markaðinn. Jafnframt hefur verið bætt við nútímalegri reglum um þjónustuviðskipti, stafræn viðskipti, fjárfestingar, umhverfismál og réttindi launafólks. Hvað gerir Ísland á meðan? Aðildarviðræður við ESB snúast ekki eingöngu um það hvað Ísland kynni að fá út úr hugsanlegum aðildarsamningi. Þær hafa einnig áhrif á hvaða aðrar leiðir íslensk stjórnvöld telja raunhæft að fara á meðan. Ríki, sem stefnir að inngöngu í Evrópusambandið, getur ekki á sama tíma mótað sjálfstæða viðskiptastefnu til langs tíma eins og ekkert hafi í skorist. Við inngöngu tæki sameiginleg viðskiptastefna Evrópusambandsins við og tvíhliða fríverslunarsamningur Íslands við Kína félli úr gildi. Önnur ríki hafa takmarkaðan hvata til að verja tíma og fyrirhöfn í að semja um eða gera umfangsmiklar endurbætur á viðskiptasamningum við ríki sem hefur markað sér stefnu í átt að aðildarviðræðum við ESB. Slíkur samningur gæti reynst skammlífur. Umsókn um aðild samkvæmt 49. gr. sáttmálans um Evrópusambandið er ekki hlutlaus æfing sem aðeins er ætlað að kanna hvað kynni að vera í boði. Hún er utanríkispólitísk yfirlýsing um þá stefnu sem ríki hyggst taka og hefur áhrif á samskipti þess við aðra viðskiptaaðila. Það er því ekkert sem líkist ókeypis máltíð fólgið í því að kjósa „já, bara til að sjá“. Aðildarferli, sem stendur árum saman, skapar biðstöðu. Á meðan geta önnur ríki samið um betri markaðsaðgang, styrkt samkeppnisstöðu fyrirtækja sinna og tryggt sér tækifæri sem íslenskum fyrirtækjum standa ekki til boða með sömu kjörum. Sviss hefur skýra stefnu og nýtir fullveldi sitt til að opna nýja markaði og styrkja efnahag sinn með nýjum og uppfærðum samningum um vöru- og þjónustuviðskipti. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, vakti athygli á ólíkri stöðu Íslands og Sviss í færslu á LinkedIn 22. ágúst. Hann benti á að Sviss hefði lokið endurbótum á samningi sínum við Kína og að tollar myndu því í reynd lækka niður í núll, á meðan ekkert sambærilegt frumkvæði væri nú fyrirhugað af hálfu Íslands. Spurning hans hittir naglann á höfuðið: Er Ísland í raun að bíða eftir Kína — eða er Ísland fyrst og fremst að bíða eftir sjálfu sér? Erna Bjarnadóttir er hagfræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Færeyingurinn kvaddi Víkinga Norskt flug enn í hers höndum Hélt Conor framhjá Megan? Hollendingar sniðganga Eurovision Salah gerði gæfumuninn Umræðan Heimastjórn Ætlar ríkisstjórnin að láta tækifæri morgundagsins renna hjá? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta var óvenjulegur dagur“ „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Menningarnótt að ná hámarki Undirfyrirsögn rengd Mest lesið Í gær Í vikunni „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Kallar eftir endurskoðun veggjalda Vilja aðgerðir vegna vatnsleka í göngunum „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Aðlögun í viðræðum reglan Um 50 skjálftar í hrinu á Reykjanestá Mígrenissjúklingar öðlast málsvara Steinn Ármann Magnússon er látinn „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu Ölvuð börn í miðbænum: Tveimur skemmtistöðum lokað Halla forseti búin í tánum Nærri 23 gráða hiti Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Færeyingurinn kvaddi Víkinga Norskt flug enn í hers höndum Hélt Conor framhjá Megan? Hollendingar sniðganga Eurovision Salah gerði gæfumuninn Umræðan Heimastjórn Ætlar ríkisstjórnin að láta tækifæri morgundagsins renna hjá? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Undirfyrirsögn rengd Heilsu konungs hrakar Um 50 skjálftar í hrinu á Reykjanestá Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Mest lesið Í gær Í vikunni „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Kallar eftir endurskoðun veggjalda Vilja aðgerðir vegna vatnsleka í göngunum „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Aðlögun í viðræðum reglan Um 50 skjálftar í hrinu á Reykjanestá Mígrenissjúklingar öðlast málsvara Steinn Ármann Magnússon er látinn „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu Ölvuð börn í miðbænum: Tveimur skemmtistöðum lokað Halla forseti búin í tánum Nærri 23 gráða hiti Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“

Share this article