Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skýrslutökum frestað vegna vandræða með túlkun

Read Full Article →

Skýrslutökum af erlendum læknum sem meðhöndluðu brotaþola var frestað í Reykholtsmálinu í dag. Illa gekk fyrir túlk að þýða læknisfræðileg hugtök vitnisins. Læknarnir sem gefa áttu skýrslu eru á Möltu. Greint hefur verið frá því að brotaþoli fékk aðhlynningu þar eftir að hafa verið beittur ofbeldi á Íslandi. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi í því skyni að hafa af honum fé í apríl 2024. Sækjandi og dómari voru sammála um að fresta skýrslutöku af erlendum læknum þar til annar túlkur væri fær um að sinna verkefninu. Búist var við að skýrslutökum lyki í dag en ósennilegt þótti að annar túlkur fengist og því má gera ráð fyrir að einhverjar skýrslur verði teknar á morgun. Skýrslur verða teknar af íslenskum læknum og starfsmönnum lögreglu í dag.

Share this article