Laus störf fyrir nýútskrifað háskólafólk í Bretlandi hafa ekki verið færri í áratug en samkvæmt upplýsingum frá breska starfatorginu Adzuna voru aðeins 8.383 slík störf auglýst í júlí. Á vef Guardian segir að störfunum hafi fækkað um 45% miðað við sama mánuð í fyrra en til samanburðar voru 55.000 störf fyrir nýútskrifað háskólafólk auglýst árið 2017. Þróunin vekur athygli í ljósi þess að metfjöldi námsmanna mun hefja háskólanám í Bretlandi í næsta mánuði, eða um 263 þúsund manns. Samhliða þessu hafa gervigreind og sjálfvirknivæðing skapað óvissu um framtíð starfa fyrir nýútskrifaða. Sjá einnig Hæstu atvinnuleysistölur í Bretlandi í fimm ár Bresk fyrirtæki hafa einnig dregið úr ráðningum vegna aukins launakostnaðar, meðal annars í kjölfar hækkunar á tryggingagjöldum vinnuveitenda og lágmarkslaunum. Samkvæmt Adzuna fækkaði lausum störfum meðal annars í heilbrigðisþjónustu, hjúkrun og veitinga- og hótelgeiranum. Þróunin hefur þó ekki verið sú sama í öllum atvinnugreinum en lausum störfum hefur fjölgað í ferðaþjónustu, kennslu og byggingargeiranum.