Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Singa­púr styrkir for­eldra um 7 milljónir til barneigna

Read Full Article →

Stjórnvöld í Singapúr ætla að veita fjölskyldum nærri 70.000 Singapúrdali, að jafnvirði um 6,7 milljóna íslenskra króna, í beinan fjárstuðning fyrir hvert barn. Aðgerðirnar eiga að stemma stigu við ört lækkandi fæðingartíðni og hraðri öldrun þjóðarinnar. Lawrence Wong forsætisráðherra kynnti breytingar á barnagreiðslum og foreldraorlofi í árlegri þjóðhátíðarræðu sinni í gær. Markmiðið væri að auðvelda Singapúrbúum að eignast og ala upp börn. Íbúar ríkisins eru rúmlega sex milljónir. Að sögn Financial Times náði frjósemishlutfall sögulegu lágmarki í fyrra, 0,87 börn á hverja konu, samanborið við 0,97 árið 2024. Singapúr nálgast nú Suður-Kóreu sem á lægsta hlutfall í heimi, 0,8, og er langt undir þeim 2,1 börnum sem eru nauðsynleg til að viðhalda mannfjölda án innflytjenda. Fækkun barnseigna og auknar lífslíkur gera það að verkum að Singapúr verður að líkindum flokkað sem „ofuraldrað“ samfélag á þessu ári. Samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna merkir það að meira en 21% íbúa séu 65 ára eða eldri. Samkvæmt spám verður fjórði hver Singapúrbúi á þeim aldri árið 2030. Fjárstuðningurinn verður greiddur fram að 17 ára aldri barns. Þar á meðal eru 10.000 Singapúrdalir greiddir við fæðingu og jafnhá greiðsla vegna framhaldsnáms. Þetta fyrirkomulag byggir á kerfi sem er nú þegar í gildi en greiðslurnar verða hærri og dreifast yfir fleiri ár. Foreldraorlof verður jafnframt rýmkað, einkum hjá fjölskyldum með fleiri börn, og ríkið tekur á sig stærri hluta kostnaðar atvinnurekenda. Barnafjölskyldum verður einnig auðveldað að kaupa sína fyrstu íbúð. Wong viðurkenndi að aðgerðirnar nægðu tæplega til að ná jafnvægi í mannfjöldaþróun. Margt ungt fólk frestar barneignum vegna fjárhags eða kýs barnleysi. Stjórnvöld hyggjast því áfram styðjast við innflytjendur til að vega upp á móti lágri fæðingartíðni, þótt það hafi sætt andstöðu vegna húsnæðisverðs og samkeppni um störf. Innflytjendum verði þó tekið á móti með hóflegum og sjálfbærum hætti svo Singapúrbúar verði áfram meirihluti landsmanna.

Share this article