Singapúr hefur tilkynnt um verulega einskiptis launahækkun fyrir ráðherra ríkisstjórnar landsins, þar á meðal fyrir Lawrence Wong forsætisráðherra, sem nú þegar er launahæsti ríkisstjórnarleiðtogi heims. Financial Times greinir frá. Launapakki Wong mun hækka úr 2,2 í 3,6 milljónir singapúrskra dala, eða úr ríflega 210 milljónum króna í 345 milljónir króna. Hækkunin nemur því 135 milljónum króna eða sem samsvarar 11 milljónum króna á mánuði. Til samanburðar þénar Donald Trump 400 þúsund dali, eða um 48 milljónir króna, í árlaun. Sir Keir Starmer, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, fékk um 237 þúsund pund eða um 39 milljónir króna í árslaun samkvæmt nýjustu tölum. Wong tilkynnti í dag hann hefði samþykkt niðurstöður óháðrar endurskoðunar á launum hjá hinu opinbera, en lagt var til að laun nokkurra ráðherra hækki um allt að 9%. Laun ráðherra gætu þannig hækkað úr 1,1 í 1,2 milljónir singapúrskra dala, eða sem samsvarar 115 milljónum króna. Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi í næsta mánuði. Wong sagðist ætla að gefa það samsvarar launahækkun sinni til góðgerðarstarfs næstu fimm árin, að því gefnu að hann verði áfram forsætisráðherra. „Við getum horft fram hjá þessu máli einfaldlega vegna þess að það er pólitískt erfitt, og þetta snýst ekki aðeins um laun,“ sagði Wong á þingi. „Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta um það hvort Singapúr muni áfram búa yfir þeim gæðum í pólitískri forystu sem við þurfum til að leiða landið áfram og þjóna Singapúrbúum vel á komandi árum.“ Singapúrsk stjórnvöld hafa gefið þá skýringu að stjórnmálamönnum landsins séu greidd há laun til að geta keppt við einkageirann um hæfasta fólkið og til að draga úr spillingu. Borgríkið, sem leggur mikið upp úr orðspori sínu um heiðarlega og óspillta stjórnsýslu, hefur verið leitt af People’s Action Party, flokks Wongs, frá því landið öðlaðist sjálfstæði fyrir 61 ári.