Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Aftur vann Fram Blika í sjö marka leik

Read Full Article →

Fram vann 4-3 sigur á Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld. Blikar komust í 1-0 en Fram í 4-1. Fyrri leikur liðanna í Bestu deildinni í sumar lyktaði einnig með 4-3 sigri Fram. Eftir að Davíð Ingvarsson kom Breiðabliki 1-0 yfir með marki á 6. mínútu hófst markaveisla Framara í fyrri hálfleik. Fram skoraði nefnilega fjögur mörk gegn engu eftir þetta í hálfleiknum og um markaskorun sáu Róbert Hauksson, Haraldur Einar Ásgrímsson, Vuk Óskar Dimitrijevic og Kennie Chopart. Blikar hresstust í seinni hálfleik því Davíð Ingvarsson minnkaði muninn í 4-2 á 56. mínútu og Þorleifur Úlfarsson skoraði svo þremur mínútum síðar og þar með stóð 4-3. Þrátt fyrir fínar sóknir Blika tókst þeim ekki að jafna og Fram vann leikinn 4-3. Fram hefur þar með 43 stig í 3. sæti deildarinnar en þó Breiðablik sé í 4. sæti munar nú 13 stigum á liðunum því Blikar hafa 30 stig.

Share this article