- What: Football match between Breiðablik and Fram
- Impact: No security relevance
Breiðablik vann Fram 3-1 í kvöld í Bestu deild karla í fótbolta. Blikar komust yfir með sjálfsmarki Kennie Chopart í fyrri hálfleik og Gabríel Snær Hallsson bætti öðru marki við fyrir Kópavogsliðið fyrir leikhlé. Róbert Hauksson minnkaði muninn fyrir Fram í 2-1 snemma í seinni hálfleik og í kjölfarið voru Framarar líklegri til að jafna en Blikar að bæta við. En Ásgeir Helgi Orrason skoraði þriðja mark Breiðabliks á 66. mínútu og eftir það var sigur Blika aldrei í hættu. Breiðablik hefur nú 33 stig í 4. sæti en Fram er áfram í 3. sæti með 45 stig. Bæði lið eru orðin örugg með Evrópusæti eftir bikarsigur Breiðabliks á föstudag. Úrslitin í kvöld þýða jafnframt að Víkingur getur orðið Íslandsmeistari um helgina með sigri á KR.