- What: Over 90 layoffs due to organizational changes in Reykjavík City
- Impact: Affects staff in social welfare and education departments
Hátt í 90 manns verður sagt upp vegna umfangsmikilla skipulagsbreytinga hjá Reykjavíkurborg, samkvæmt heimildum fréttastofu. Haldinn var aukafundur í borgarráði í morgun. Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs staðfestir að þar hafi verið ræddar umfangsmiklar stjórnskipulagsbreytingar sem muni hafa áhrif á störf hjá borginni. Í frétt Vísis segir að skipulagsbreytingar tengist meðal annars svæðismiðstöðvum borgarinnar en þær eru fjórar. Eins segir að uppsagnir tuga starfsmanna hjá bæði velferðarsviði og skóla- og frístundasviði borgarinnar hafi verið teknar fyrir á fundinum. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að leggja niður að minnsta kosti tvær þessara svæðismiðstöðva og sameina starfsemina. Þessar uppsagnir bætast við uppsagnir skólaliða sem greint var frá í gær. Að minnsta kosti 11 skólaliðum hefur verið sagt upp störfum. Formaður borgarráðs segir að nánari upplýsingar verði veittar eftir að starfsfólk borgarinnar hafi verið upplýst. Fréttin hefur verið uppfærð.