Eimskip hagnaðist um 5,5 milljónir evra, eða sem nemur um 780 milljónum króna, á öðrum ársfjórðungi. Þetta er aukning um tæpa milljón evra milli ára. Eimskip birti uppgjör fyrir annan ársfjórðung eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Tekjur Eimskips jukust um 11,4% milli ára á öðrum ársfjórðungi og námu 225,4 milljónum evra eða um 32 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 21,3 milljónum evra, eða um 3 milljörðum króna, og var nánast óbreyttur frá sama tímabili í fyrra. „Rekstur annars ársfjórðungs gekk vel og þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi sáum við betri árangur í grunnrekstri félagsins en við höfum séð undanfarna ársfjórðunga.“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson , forstjóri Eimskips. Í uppgjöri félagsins segir að þrátt fyrir 53% hækkun á eldsneytiskostnaði milli ára hafi félaginu tekist að bæta afkomu þess sem rekja megi til viðbragða við hækkandi kostnaði og þeirra aðgerða sem hófust á síðasta ári til að bæta rekstur félagsins sem fólst meðal annars í aukinni skilvirkni og fækkun stöðugilda. Tekjur í siglingakerfinu jukust um 10,2% og nam aukningin 9,9 milljónum evra, þrátt fyrir að flutningsmagn hafi dregist saman um 2,4%. Sterkur útflutningur sjávarafurða, eldisfisks og vatns vó þar að hluta á móti minni flutningum tengdum stóriðju. Enn meiri vöxtur var í alþjóðlegri flutningsmiðlun þar sem tekjur jukust um 21,2%, eða 13,6 milljónir evra. Aukið magn, hærri alþjóðleg flutningsverð og nokkur sérverkefni studdu við afkomuna. Rekstrarkostnaður félagsins jókst hins vegar um 12,7% og nam 204,1 milljón evra. Þar vó þungt hækkandi olíuverð vegna geopólitískrar spennu í Mið-Austurlöndum. Eldsneytiskostnaður Eimskips jókst um 52,7% milli ára, eða um 5,7 milljónir evra, þrátt fyrir að olíunotkun hafi minnkað um 5,8%.