Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ísfélagið hagnast um 3,4 milljarða á fyrri árshelmingi

Read Full Article →

Ísfélagið hagnaðist um 4,7 milljónir dala á öðrum ársfjórðungi ársins, eða um 579 milljónir króna, samanborið við 6,1 milljón dala tap á sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur námu 45,3 milljónum dala, eða um 5,6 milljörðum króna, og jukust um tæp 18% frá öðrum ársfjórðungi 2025 þegar þær voru 38,4 milljónir dala. Félagið birti uppgjör annars ársfjórðungs fyrir opnun markaða í morgun. Rekstrarhagnaður nam 9,4 milljónum dala, samanborið við 6,2 milljónir dala í fyrra. EBITDA nam 14,2 milljónum dala og jókst úr 10,3 milljónum dala milli ára. EBITDA-framlegð hækkaði úr 26,9% í 31,3%. „Annar ársfjórðungur er yfirleitt sá ársfjórðungur þegar umsvifin eru hvað minnst í rekstrinum og þá er tíminn oft notaður til að sinna nauðsynlegu viðhaldi um borð í skipum og í landi.“ segir Stefán Friðriksson , forstjóri Ísfélagsins. Á fyrri helmingi ársins nam hagnaður Ísfélagsins 27,5 milljónum dala, jafnvirði um 3,4 milljarða króna, en félagið tapaði 9,7 milljónum dala á sama tímabili í fyrra. Tekjur námu 118,6 milljónum dala, sem er um 57% aukning frá sama tímabili í fyrra. EBITDA á fyrri árshelmingi nam 45,8 milljónum dala, samanborið við 17,7 milljónir dala í fyrra, og EBITDA-framlegð jókst úr 23,4% í 38,7%. „Ísfélagið skilaði góðri afkomu á fyrri hluta ársins 2026. Ástæðurnar voru góð loðnuvertíð og fín aflabrögð Sólbergs ÓF, frystitogara félagsins, ásamt háu verði á helstu afurðum félagsins,“ segir Stefán. Heildarafli skipa félagsins nam rúmlega 51 þúsund tonnum á tímabilinu, samanborið við 22.648 tonn á sama tíma í fyrra. Horfur á mörkuðum fyrir uppsjávarafurðir eru að sögn Stefáns almennt góðar. Makrílvertíð hófst þó óvenju seint vegna mikils samdráttar í kvóta og því er útlit fyrir að tekjur félagsins af makrílveiðum dragist verulega saman milli ára.

Share this article