Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjallgöngurnar sjálfsagður hluti af lífinu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.8.2026 | 23:50 | Uppfært 26.8.2026 0:24 Fjallgöngurnar sjálfsagður hluti af lífinu „Íþróttir og hreyfing hafa alltaf skipt mig miklu máli,“ segir Sigmundur, hér staddur við fjallið sitt. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Fjallgöngurnar eru fyrir löngu orðnar sjálfsagður hluti af lífi mínu,“ segir Sigmundur Stefánsson. Hann er orðinn 79 ára og enn í góðu formi sem hann þakkar meðal annars reglulegri hreyfingu. Það var fyrr í þessum mánuði sem hann fór í sína 4.000. ferð á Úlfarsfellið; fjallið sem er á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar og eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Dag hvern er fjöldi fólks þar á ferð. Hálftími á Hákinn „Þetta byrjaði árið 2005; þá náði ég 42 ferðum. Svo var það 2006 sem ég fór að taka þetta með meira skipulagi og skrá niður hverja ferð. Þær hafa síðan verið jafnan eitthvað á þriðja hundraðið yfir árið og svo komst talsverður kraftur í þetta eftir að ég hætti að vinna árið 2013,“ segir Sigmundur og heldur áfram: „Það hefur líka verið hvetjandi að við hjónin búum núna hér við Skyggnisbraut, nánast við rætur Úlfarsfellsins. Gjarnan legg ég þá upp frá plani sem er hér rétt fyrir innan byggðina í dalnum, þaðan er þægileg braut upp á fjallið. Ég er um það hálftíma á toppinn og fer oftast á Hákinn, sem er á fjallinu vestanverðu með frábæru útsýni yfir borgina og út á Sundin. Stundum fer ég líka á austanvert fjallið. Við fjarskiptamastrið þar á Stórahnúk, sem er 296 metrar og hæsti punktur fjallsins, hefur verið settur upp pallur þar sem sést vel yfir til austurfjalla og suður á Reykjanesskagann.“ Alls 294 ferðir árið 2021 Ferðir Sigmundar nú í ár eru orðnar alls 184 og að óbreyttu býst hann við að talan fari í 260 um komandi áramót. Hann verður þá ekki langt frá sínu besta, árinu 2021, þegar Úlfarsfellsgöngurnar voru alls 294. Það var á tímum covid, þegar svo margt var lokað en margir fundu þá sína fjöl í gönguferðum. „Ég fer oft af stað á sumrin um klukkan átta á morgnana en bíð eftir að bjart sé orðið á veturna. Fer flesta daga og þetta er ekkert mál en nú, þegar ég nálgast áttrætt, er ég aðeins farinn að gefa eftir. Fer kannski ekki alveg jafn hratt og áður en er þó samt að fara þetta, upp og niður, á um það bil klukkustund. Ég er þó lengur ef ég fer þvert yfir fjallið, héðan úr Úlfarsárdalnum og yfir í Mosfellsbæinn og aftur til baka,“ segir Sigmundur. Tími til að hugsa Í ferðinni númer 4.000 núna þann 16. ágúst voru með honum kona hans, Hafdís Sigurgeirsdóttir, dóttir þeirra og barnabarn og nokkrir fleiri úr hópi fjölskyldu og vina. Samfylgd þeirra segir göngugarpurinn að hafi verið góð og hvetjandi. „Íþróttir og hreyfing hafa alltaf skipt mig miklu máli. Ég er meira að segja enn aðeins að gutla í frjálsum íþróttum og var núna um helgina á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum í eldri aldursflokkum sem haldið var austur á Selfossi. Keppti þar í spjót- og lóðkasti, sem var mjög gaman. En í aðalhlutverki eru gönguferðirnar á fjallið og þær eru góður tími til að hugsa. Mér finnst gaman að spila brids og í brekkunum er ég oft að velta fyrir mér hvað ég hefði getað betur gert í spilamennsku gærkvöldsins. Á sumrin er svo gaman að velta fyrir sér landi og gróðri, bláum lúpínubreiðum og gulum túnfíflum, eða heyra í hrossagauknum með sitt hneggjandi hljóð,“ segir Sigmundur Stefánsson fjallagarpur að síðustu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Rafmagn komið á í Grindavík og nágrenni Staðfest að banameinið var þungt höfuðhögg Tapaði tugum milljóna í vefspilum „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Skilin eftir sex ára hjónaband Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Kassi Schrödingers Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ótti við rússneska kafbáta á Íslandi „Það er gríðarlega sterkt ákall um þetta“ Banaslys varð í Stuðlagili Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Mest lesið Í gær Í vikunni Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Rafmagn komið á í Grindavík og nágrenni Staðfest að banameinið var þungt höfuðhögg Tapaði tugum milljóna í vefspilum „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Skilin eftir sex ára hjónaband Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Kassi Schrödingers Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Banaslys varð í Stuðlagili Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Yfirmaður CIA til fundar við ráðamenn í Moskvu „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Mest lesið Í gær Í vikunni Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar

Share this article