Nettóvelta netverslunarinnar Boozt nam 2.061 milljón sænskra króna, eða sem nemur um 26,5 milljörðum íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi og jókst um 13% frá sama tímabili í fyrra. Aðlagaður rekstrarhagnaður (e. adjusted EBIT margin) nam 133 milljónum sænskra króna, eða sem nemur um 1,7 milljörðum íslenskra króna, og aðlagað rekstrarhagnaðarhlutfall var 6,5%. Til samanburðar var hlutfallið 3,4% á öðrum ársfjórðungi ársins 2025. Þetta kemur fram í uppgjöri netverslunarinnar sem skráð er á markað í Danmörku og Svíþjóð. Í uppgjörinu segir að vöxturinn hafi verið mikill alla mánuði annars ársfjórðungs og allir helstu vöruflokkar og markaðir skilað traustum vexti. Vöxturinn hafi einna helst verið drifinn áfram af aukinni virkni kvenkyns viðskiptavina. Kvenfatnaður er stærsti einstaki vöruflokkur netverslunarinnar og jókst sala þar um 9% á öðrum ársfjórðungi, eftir samdrátt nokkra fjórðunga þar á undan. Vöruframlegð nam 40,1% á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 39,1% á sama tímabili í fyrra. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um fyrr í sumar er farið að hraða á vexti Boozt á nýjan leik eftir að vöxtur áranna 2024 og 2025 var undir væntingum. Í lok júní hækkaði félagið afkomuspá fyrir árið 2026. Þannig reiknar fyrirtækið nú með 7% til 11% tekjuvexti en bilið var 3% til 8% í fyrri spá. Þá var spá um aðlagað rekstrarhagnaðarhlutfall hækkuð öðru sinni á jafn mörgum mánuðum, upp í 6% til 6,8%. Hermann Haraldsson, forstjóri Boozt, kveðst mjög ánægður með uppgjör annars ársfjórðungs, ekki síst vegna þess að markmið félagsins um tveggja tölustafa tekjuvöxt náðist. „Tekjuvöxtur og rekstrarhagnaður ársfjórðungsins var meiri en við reiknuðum með í byrjun árs. Við réðumst í ýmsar breytingar á síðasta ári sem voru hugsaðar til þess að stuðla að vexti til framtíðar og það er gaman að sjá hve hratt þær hafa skilað sér. Það er ekki annað að sjá en að viðskiptavinir séu mjög ánægðir með verslunina okkar, sem er auðvitað það allra mikilvægasta.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .