Nettóvelta netverslunarinnar Boozt nam 2.061 milljón sænskra króna, eða sem nemur um 26,5 milljörðum íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi og jókst um 13% frá sama tímabili í fyrra. Aðlagaður rekstrarhagnaður (e. adjusted EBIT margin) nam 133 milljónum sænskra króna, eða sem nemur um 1,7 milljörðum íslenskra króna, og aðlagað rekstrarhagnaðarhlutfall var 6,5%. Til samanburðar var hlutfallið 3,4% á öðrum fjórðungi ársins 2025. Hermann Haraldsson, forstjóri Boozt, kveðst mjög ánægður með uppgjör annars ársfjórðungs, ekki síst vegna þess að markmið félagsins um tveggja tölustafa tekjuvöxt náðist. „Tekjuvöxtur og rekstrarhagnaður ársfjórðungsins var meiri en við reiknuðum með í byrjun árs. Við réðumst í ýmsar breytingar á síðasta ári sem voru hugsaðar til þess að stuðla að vexti til framtíðar og það er gaman að sjá hve hratt þær hafa skilað sér. Það er ekki annað að sjá en að viðskiptavinir séu mjög ánægðir með verslunina okkar, sem er auðvitað það allra mikilvægasta.“ Hermann fagnar að sama skapi aukinni virkni kvenkyns viðskiptavina Boozt, en sem fyrr segir jókst sala á kvenfatnaði um 9% á öðrum ársfjórðungi. „Það kom tímabil þar sem virkni kvenna dróst saman, sem skýrist væntanlega að mestu af því að vöruúrvalið var ekki nægilega fjölbreytt. Ein af fyrrnefndum breytingum fól í sér að breikka vöruúrvalið og það hefur skilað því að viðskiptavinum sem versla í kvenna-vöruflokknum hefur fjölgað um 20% í vor samanborið við sama tímabil í fyrra.“ Hann segir að kvenfataúrvalið hafi ekki einungis verið breikkað heldur einnig í snyrtivöru, barnafatnaði, heimilismunum og ýmsum öðrum vöruflokkum. „Karlmenn kaupa oftar vörur á sjálfa sig en konur sjá oft um að kaupa föt á börnin og heimilismuni. Sumar konur sjá meira að segja um að kaupa öll föt á eiginmenn sína, svo að það gefur augaleið hvað þetta er mikilvægur viðskiptavinahópur.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .