Samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar nam fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára 14.500 í júlí. Atvinnuleysi var 6,3% og jókst um 1,2% milli mánaða. Á ársgrundvelli hækkaði atvinnuleysi um 3,4% en það nam 2,9% í júlí á síðsta ári. Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknarinnar var atvinnuleysi 5,5% í júlí 2026 og fjöldi atvinnulausra um 12.900. Hlutfall starfandi var 75,5%, sem samsvarar tæplega 221.900 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,8% eða um 234.800 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 2,3 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 4,8% og atvinnuþátttaka dróst saman um 3,1%.