Tólf nafnlausir reikningar á spámarkaðnum Polymarket græddu samanlagt um 330 þúsund dali á veðmálum um að Bandaríkin myndu ráðast á Íran fyrir laugardag. Samsvarar það um 41 milljón króna á gengi dagsins. Þetta kemur fram í greiningu Financial Times, sem segir að veðmálin hafi verið óvenju stór og sett fram með sláandi tímasetningu dagana fyrir loftárásirnar. Polymarket er vettvangur þar sem fólk veðjar á úrslit atburða og fara viðskiptin fram með rafmyntum. FT segir að hægt sé að rekja viðskipti á slíkum vettvangi með því að skoða rafmyntaveski sem eru nafnlaus auðkenni í bálkakeðjunni. Þau gefa ekki upp hver stendur á bak við en sýna þó hvenær veðmál eru sett, á hvaða mörkuðum og hvaða greiðslur verða. Lögðu 67 þúsund dali undir Samkvæmt greiningu FT lögðu þessir 12 reikningar samanlagt 66.993 dali undir í veðmál um að árás yrði gerð fyrir laugardag. Um helmingur veðmálanna var lagður undir sex klukkutímum áður en árásin hófst. Í greininni er bent á að slík tímasetning, ásamt stærð veðmálanna, veki spurningar um hvort einhverjir hafi haft betri upplýsingar en markaðurinn almennt. „Ef ný veskja setja mjög stór veðmál á eitt mál, þá veltir maður fyrir sér hvers vegna,“ er haft eftir Matt Saincome, framkvæmdastjóra gagnaveitunnar Unusual Whales. Hann tekur þó fram að fólk geti líka gert stór veðmál og haft rangt fyrir sér en mynstrið geti gefið tilefni til grunsemda um innherjaupplýsingar. FT bendir á að nafnlausir spámarkaðir sem notast við rafmyntir geti orðið vandasamir ef aðilar með aðgang að viðkvæmum upplýsingum fara að græða á þeim. Hernaðaraðgerðir séu sérstaklega viðkvæmar þar sem óvæntur tími aðgerðar er oft hluti af árangri. Í greininni er líka sagt frá því að á netinu sé til staðar menning þar sem notendur leiti markvisst að „mögulegum innherjum“ og reyni að herma eftir veðmálum þeirra. Í Bandaríkjunum falla spámarkaðir undir afleiðuviðskipti og eru undir eftirliti Commodity Futures Trading Commission (CFTC). Hins vegar segir FT að ólöglegt sé að eiga viðskipti á trúnaðarupplýsingum. Lögmaðurinn Peter Malyshev hjá Sidley segir í greininni að ef opinber starfsmaður veðjaði á grundvelli upplýsinga sem hann fékk í starfi sínu væri hann að eiga viðskipti á „mikilvægum óopinberum upplýsingum“. CFTC gaf nýlega út ábendingu þar sem stofnunin ítrekaði að hún hefði „fulla heimild“ til að grípa inn í vegna ólögmætra viðskiptahátta á spámarkaði, þar á meðal misnotkunar trúnaðarupplýsinga, svika og markaðsmisnotkunar.