Viðskipti fyrir meira en 217 þúsund dali fóru fram á spámarkaðnum Polymarket um úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það jafngildir rúmlega 26 milljónum króna miðað við gengi dagsins. Polymarket er svokallaður spámarkaður þar sem notendur kaupa og selja samninga sem tengdir eru niðurstöðu tiltekins atburðar. Verð samninganna er jafnan túlkað sem líkindi á niðurstöðunni. Ef samningur um ákveðna niðurstöðu gengur kaupum og sölum á 50 sentum jafngildir það því að markaðurinn meti líkurnar á henni um 50%. Þegar niðurstaða liggur fyrir greiðir samningur réttrar niðurstöðu einn dal en samningur rangrar niðurstöðu verður verðlaus. Markaðurinn var virkur alla kosninganóttina og á köflum voru viðskipti nokkuð ör. Hreyfingarnar gáfu þannig ágæta mynd af því hvernig væntingar um niðurstöðuna þróuðust eftir því sem fyrstu tölur bárust og fylgdu nokkuð greinilega breytingum á stöðunni í talningunni. Líkurnar á sigri já-hliðarinnar höfðu lengst af verið í kringum 45–50% fyrr í vikunni, en fóru lækkandi þegar nær dró kjördegi. Á laugardagskvöld voru þær komnar niður í kringum 30%. Fyrstu tölur úr landsbyggðarkjördæmunum bentu til forskots nei-hliðarinnar og líkurnar á sigri já-hliðarinnar héldu áfram að síga. Myndin breyttist hins vegar skyndilega þegar fyrstu tölur bárust úr kjördæmum Reykjavíkur skömmu fyrir miðnætti. Þar var stuðningur við já-hliðina mun meiri og þegar Reykjavíkurkjördæmin höfðu bæst við var staðan á landsvísu orðin mun jafnari. Polymarket brást hratt við. Verð á samningum um sigur já-hliðarinnar rauk á skömmum tíma upp í nærri 51%. Um stund verðlagði markaðurinn kosninguna því í raun sem hnífjafna. Það reyndist skammvinnt. Þegar seinni tölur úr Reykjavíkurkjördæmunum fóru að berast, ásamt seinni tölum úr Suðvesturkjördæmi, breyttist myndin hratt á ný. Þá varð ljóst að forskot já-hliðarinnar í Reykjavík væri ekki nægilega mikið til að vinna upp forskot nei-hliðarinnar annars staðar. Líkurnar á sigri já-hliðarinnar tóku þá mikla dýfu á Polymarket. Verð samninganna féll hratt og hélt áfram niður eftir því sem fleiri tölur styrktu stöðu nei-hliðarinnar. Þegar niðurstaðan varð nánast ljós voru líkurnar komnar niður undir núll. Endanleg niðurstaða varð sú að 118.040 greiddu atkvæði gegn því að aðildarviðræður yrðu hafnar að nýju, eða 52,8%, en 105.339 sögðu já, eða 47,2%. Kjörsókn var 82,6%. Sveiflurnar á Polymarket sýndu þó vel um nóttina hversu hratt spámarkaðir geta tekið inn nýjar upplýsingar og hvernig spákaupmenn eru fljótir að bregðast við.