Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Sykurhúðun á framsali valds til Brussel

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.8.2026 | 8:30 Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Birgir Ármannsson. mbl.is/Hallur Már Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst er mikilvægt að hafa í huga að Ísland gæti ekki orðið að aðili að Evrópusambandinu að óbreyttri stjórnarskrá. Það hefur verið ríkjandi viðhorf meðal fræðimanna og stjórnmálamanna, sem um þetta hafa fjallað á undanförnum áratugum, að ef Ísland gengi í ESB yrði fyrst að breyta stjórnarskránni þannig að framsal valds til yfirþjóðlegra stofnana yrði heimilað. Ýmsar spurningar varðandi stjórnarskrárbreytingar En þótt þetta atriði hafi í sjálfu sér ekki orðið tilefni neinna sérstakra deilna á undanförnum vikum og mánuðum hefur lítið farið fyrir umræðu um það hvenær og hvernig eigi að breyta stjórnarskránni. Ríkisstjórnarflokkarnir á Alþingi virðast ætla að beita fyrir sér fyrir slíkum breytingum eftir að fullbúinn aðildarsamningur hefur verið samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu en áður en samningurinn er fullgiltur og gengur í gildi. Slík tímasetning er hins vegar hvorki sjálfsögð né óumdeild, eins og meðal annars má ráða af prýðilegri álitsgerð Lagastofnunar Háskóla Íslands fyrir utanríkismálanefnd Alþingis í vor. Ekki hefur heldur verið fjallað neitt um útfærslu slíkra stjórnarskrárbreytinga, en ef litið er til landanna í kringum okkur hafa margar mismunandi leiðir verið farnar varðandi framsetningu og orðalag slíkra ákvæða. Og jafnvel hér á landi, í umfjöllun stjórnlaganefndar, stjórnlagaráðs, sérfræðinganefndar og meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á árunum 2011-2013, voru að minnsta kosti fimm útgáfur af slíku ákvæði í umræðunni, og engin þeirra óumdeild eða endanlega afgreidd. Það er ámælisvert að ríkisstjórnin hafi ekki með einhverjum hætti gefið til kynna hvernig hún hyggst standa að þessum mikilvæga þætti málsins. Ríkisstjórn, sem óskar eftir umboði til að hefja ferli, sem mun taka mörg ár og kosta mikla peninga, verður að segja sæmilega skýrt til hvers hún ætlar að nota umboðið. Verulegt framsal valds Þessar spurningar skipta máli, en einmitt núna skiptir hins vegar enn meira máli að hafa í huga, hvers vegna það hefur verið ríkjandi viðhorf í fræðilegri umræðu að stjórnarskrárbreytingar væru nauðsynlegar vegna ESB-aðildar. Ástæðan er auðvitað sú, að ESB-aðild kallar á verulegt framsal valds á öllum meginsviðum ríkisvaldsins, löggjafarvalds, dómsvalds og framkvæmdarvalds. Ítrekað hefur komið fram í skrifum fræðimanna, að aðild að ESB væri að þessu leyti verulega frábrugðin öðru alþjóðlegu samstarfi og stofnunum, sem Ísland á aðild að. Hvorki það alþjóðasamstarf, sem byggist á hefðbundnum reglum þjóðarréttar, né samningurinn um EES, sem vissulega hefur ákveðna sérstöðu, gera ráð fyrir framsali valds með þeim hætti sem krafist er innan ESB. Hvergi í slíku samstarfi er gert ráð fyrir sambærilegum reglum og gilda innan ESB um bein lagaáhrif og bein réttaráhrif margvíslegra ESB-reglna eða um skilyrðislausan forgang ESB-reglna þegar þær eru ekki sambærilegar við reglur landsréttar aðildarríkjanna. Samanburður við aðild að NATO, Norðurlandaráð, EFTA eða EES, svo nokkur dæmi séu nefnd, á þess vegna engan veginn við. Með slíku tali er bara verið að drepa umræðunni á dreif. Að framselja vald eða deila valdi Önnur tilraun til að rugla umræðuna birtist í tali margra ESB-sinna um að í raun sé ekki verið að framselja vald til ESB heldur ákveði aðildarríkin bara að deila tilteknu valdi með öllum hinum ríkjunum. Stundum er þetta orðað svo að ríkin deili fullveldi sínu með ESB. Þetta er auðvitað í besta falli hálfsannleikur. Á því leikur enginn vafi að ríki sem gengur í ESB framselur mikilvæga hluta ríkisvalds síns til stofnana ESB. Það er skýrt og hafið yfir vafa. Á öðrum sviðum er hins vegar hægt að tala um að ríkin deili valdheimildum með ESB. Þar er stundum talað um skiptar valdheimildir. En jafnvel í slíkum tilvikum eru það ákvæði ESB-reglnanna sem gilda, ef reglur aðildarríkjanna rekast á við þær. Og þegar upp er staðið eru það stofnanir ESB, framkvæmdastjórnin, undirstofnanir hennar og ESB-dómstóllinn, sem kveða á um túlkun og valdmörk í þessu sambandi. Þegar menn tala um að ríki deili fullveldi sínu með ESB og öðrum aðildarríkjum er þannig verið að gefa mjög villandi mynd af skipan mála. Réttast er að tala um slíkan málflutning sem sykurhúðun, enda er með orðalagi af þessu tagi bara verið að reyna að nota einhvers konar sykur eða sætuefni til að fela bragð, sem mörgum kann að þykja alltof beiskt eða súrt. Birgir Ármannsson er lögmaður og fyrrverandi forseti Alþingis. Evrópuþingið „ESB-aðild kallar á verulegt framsal valds á öllum meginsviðum ríkisvaldsins, löggjafarvalds, dómsvalds og framkvæmdarvalds.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Breytingin á Meistaradeildinni hefur heppnast vel Segja framsetningu Viðskiptaráðs villandi Aðsend grein: Hvað er í pakkanum? Beint: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Aðsend grein: Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Umræðan Trúin á Ísland Hvað er í pakkanum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Yfir 1.300 manns er saknað „Litið á mig sem dópista“ Endaði á að moka ofan í holuna Myndskeið: Skyndiflóðið eirði engu Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Endurskoðar endurgreiðslur Fimm skýringar á mikilli þátttöku Beiðni send ráðuneytinu fyrir ári Yngsti hópurinn hallast að nei „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Nýjast á mbl.is » Breytingin á Meistaradeildinni hefur heppnast vel Segja framsetningu Viðskiptaráðs villandi Aðsend grein: Hvað er í pakkanum? Beint: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Aðsend grein: Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Umræðan Trúin á Ísland Hvað er í pakkanum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við leitum lausna og göngum til samninga“ Endurskoðar endurgreiðslur Myndskeið: Skyndiflóðið eirði engu Varað við svikapóstum: Merktir „dómslögreglu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Endurskoðar endurgreiðslur Fimm skýringar á mikilli þátttöku Beiðni send ráðuneytinu fyrir ári Yngsti hópurinn hallast að nei „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Loka

Share this article