Innlent | Morgunblaðið | 27.8.2026 | 10:50 Óábyrg umræða um evruna Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Kristinn Ingvarsson Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Kos vill breyta aðildarferli Rapparinn segir nei Yngsti hópurinn hallast að nei Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður „Við leitum lausna og göngum til samninga“ » Fleiri tengdar fréttir Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi fjármálaráðherra segir ljóst að evran verði ekki tekin upp sem gjaldmiðill í bráð, fari svo að aðildarviðræður við ESB hefjist á ný. Þvert á móti taki þá við langt og tímafrekt ferli áður en upptaka evru verði raunhæf. Steingrímur vék að þessu á fundi hjá samtökunum Áfram Ísland sem fram fór í Hofi á Akureyri. Af því tilefni lék blaðamanni forvitni á að vita á hverju Steingrímur byggir þetta mat sitt en hann var fjármálaráðherra 2009-2011 og svo atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra 2012-2013. Fór hann þá meðal annars með sjávarútvegs- og landbúnaðarmálin og þekkir því vel til þess hvernig þau mál stóðu undir árslok 2012, eins og hann rakti í ræðunni á Akureyri. „Það má skoða hvað þetta ferli hefur tekið langan tíma hjá ríkjum sem hafa gengið í Evrópusambandið,“ segir Steingrímur. „Króatía gekk í ESB árið 2013 en tók upp evru árið 2023. Það tók Króata enda töluverðan tíma að uppfylla skilyrðin fyrir upptöku evru. Það má líka nefna að Pólverjar eru ekkert að flýta sér að taka upp evru. Þeim líður vel með pólska slotið [sem gjaldmiðil],“ segir Steingrímur en Pólland gekk í ESB árið 2004. Við þetta má bæta að Búlgaría tók síðast ríkja upp evruna í byrjun þessa árs, 19 árum eftir að landið gekk í ESB árið 2007, og varð þar með 21. evruríkið. Komust lítt áleiðis „Segjum sem svo að aðildarviðræðurnar við ESB komist í gang á öndverðu ári 2027 – það mun enda taka tíma að koma þeim í gang, skipa nefndir og svo framvegis – og að þeim ljúki í lok árs 2028, eða á árinu 2029, og myndu þá ganga vel miðað við fyrri tilraun. Við hjökkuðum enda í sama farinu síðast 2010-2012 en eiginlegar viðræður hófust 2010. Steingrímur J. áritaði rauða ferninginn fyrir miðju í anddyri OECD sem fjármálaráðherra. Hillary Clinton áritaði gula reitinn fyrir neðan. mbl.is/Baldur Í millitíðinni verða væntanlega alþingiskosningar á Íslandi og því getur margt sett strik í reikninginn. Segjum jafnframt sem svo að hin pólitíska staða verði óbreytt og að aðildarsamningur liggi fyrir um mitt ár 2029 og verði til afgreiðslu með einhverjum hætti. Svo taki við stjórnarskrárbreyting og kosningar [um aðildarsamning] árið 2029 eða árið 2030. Jafnframt þyrftum við að uppfylla ýmis skilyrði þegar Ísland væri komið í biðsal evrunnar [sem aðildarríki ESB] um lága verðbólgu og vexti og sömuleiðis tiltekin viðmið í ríkisfjármálum og varðandi gengisstöðugleika. Ég á því erfitt með að sjá fyrir mér að ferlið við upptöku evru myndi ekki taka einhver ár í viðbót [eftir að Ísland væri gengið í ESB]. Þannig að ef þetta færi nú allt já-leiðina væri engu að síður liðið vel á fjórða áratuginn áður en evran væri komin hér í brúk. Ódýr málflutningur Þannig að evran myndi ekki hafa mikil áhrif á verðbólgu og vexti fyrr en að þetta mörgum árum liðnum. Það er því ódýr málflutningur að segja að ef já-ið verður ofan á [í þjóðaratkvæðagreiðslunni] 29. ágúst muni vextir lækka hinn 30. ágúst. Það finnst mér ansi gróf nálgun,“ segir Steingrímur. Eftir efnahagshrunið haustið 2008 bundu aðildarsinnar miklar vonir við aðild að ESB og upptöku evru. Töldu jafnvel að yfirlýsing um ESB-umsókn gæti ein og sér styrkt stöðu Íslands. Steingrímur, sem þekkir þetta tímabil í stjórnmálasögu Íslands flestum betur, segir aðstæður nú ósambærilegar. „Við Íslendingar vorum þá sem þjóð á hnjánum. Staða landsins var auðvitað mjög veik með engan gjaldeyrisvaraforða og í gjaldeyrishöftum. Ein kenningin var sú að aðild að ESB og upptaka evru gæti verið leið út úr höftunum en við fundum hana sjálf.“ ESB átti að vera skjól Þannig að það var mikið gert úr hugsanlegum ávinningi ESB-aðildar? „Ef ég man rétt var rætt um að Ísland kæmist í eitthvert skjól í ljósi umsóknar og að á meðan við værum í aðildarferli værum við í einhvers konar skjóli. Það hafði ekkert vægi hjá mér. Ég reiknaði alltaf með því að Ísland myndi vinna sig sjálft út úr þessum vanda og það gerðum við og alls óvíst að okkur hefði gengið það betur þótt við hefðum verið nær Evrópusambandinu. Ég sagði nú stundum á þessum árum að það væri fljótlegra að snúa við litlum bát en stóru skipi. Það sannaðist í okkar tilviki að við gátum verið snögg að gera ýmislegt. Við höfðum fullt frelsi til að gera það sem við töldum réttast, hvort sem það var að hafa gjaldeyrishöft eða beita hörðu í samskiptum við kröfuhafa og svo framvegis. Við höfðum vissulega stuðning Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í því, merkilegt nokk, þótt því hafi ekki verið flaggað en hann stóð við bakið á okkur og lét kröfuhafa heyra að þeir ættu að láta Ísland í friði,“ segir Steingrímur til upprifjunar. Brasilía stóð með Íslandi Spurður hvort rétt sé að Kína hafi lagt Íslandi lið í þessari baráttu innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir Steingrímur að Kína hafi í öllu falli ekki verið á móti Íslandi og raunar „réttum megin í málinu 2010 eins og reyndar flestir voru orðnir“. „Jú, Kínverjar voru frekar á okkar bandi en sú fjarlæga þjóð sem stóð langmest með okkur var Brasilía. Fulltrúi Brasilíu [hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum] var þeirrar skoðunar að það væri komið fram við Íslendinga af ósanngirni og ýtti hressilega við ýmsum; sagði að Hollendingar og Bretar væru að misnota sjóðinn með því að taka umsókn Íslands í gíslingu. Hann stóð í lappirnar gegn efnahagslegu stórveldunum innan AGS. Síðan snerist taflið við og við fengum sífellt fleiri í lið með okkur, til dæmis Kanada, og svo byrjaði samstaðan í Evrópu að rofna og Frakkar urðu okkur frekar vinsamlegir og að lokum Bandaríkin í apríl 2010,“ segir Steingrímur um þessa örlagatíma. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Kos vill breyta aðildarferli Rapparinn segir nei Yngsti hópurinn hallast að nei Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður „Við leitum lausna og göngum til samninga“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Maðurinn sem lést sagður vera pólskur Óábyrg umræða um evruna Dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir frelsissviptingu Gjaldalækkanir mjög jákvæðar Sonur Britney Spears í tískuheiminn Umræðan Trúin á Ísland Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Hundruð ferðamanna saknað í Nepal Meta samþykkir að greiða 2.000 milljarða í sátt „Hvað á að hafa mikið vit fyrir fólki?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Styttir heimsókn sína til Íslands Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Endurskoðar endurgreiðslur Ókunnugur maður reyndist hvatning „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Nýjast á mbl.is » Maðurinn sem lést sagður vera pólskur Óábyrg umræða um evruna Dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir frelsissviptingu Gjaldalækkanir mjög jákvæðar Sonur Britney Spears í tískuheiminn Umræðan Trúin á Ísland Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varað við svikapóstum: Merktir „dómslögreglu“ Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Segir 517 útlendinga ófundna eftir mannskæð flóð Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Styttir heimsókn sína til Íslands Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Endurskoðar endurgreiðslur Ókunnugur maður reyndist hvatning „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka