Innlent | mbl | 12.8.2026 | 10:46 Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ábati við ESB meiri en kostnaður Segir rauðu línuna dregna í auðlindum „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Beint streymi: Áfram Ísland fundar á Hvolsvelli „Þetta verður algjört skrímsli“ » Fleiri tengdar fréttir Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem sótti um aðild að Evrópusambandinu árið 2009, segist ætla að greiða atkvæði gegn því að Ísland hefji að nýju viðræður um aðild að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Hann segir hagsmunum Íslands betur borgið utan sambandsins og hefur litla trú á að nýjar viðræður skili niðurstöðu sem Íslendingar geti sætt sig við. Raunar geti hann ekki séð hvað hafi breyst frá því sótt var um síðast. „Ég mun segja nei,“ segir Steingrímur í skoðanagrein sinni á Vísi um afstöðu sína til þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hann segir að niðurstaða sín byggist einkum á tveimur atriðum. Annars vegar telji hann að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins og að það fyrirkomulag falli betur að sérstöðu landsins, sögu þess og landfræðilegri legu. Hins vegar kveðst hann hafa takmarkaða trú á að nýtt aðildarferli skili verulegum árangri. Hann vísar þar sérstaklega til reynslunnar af aðildarviðræðunum sem hófust árið 2009 og stóðu fram til ársins 2012. Telur mikilvægustu málin enn óleyst Steingrímur segir að vel hafi gengið með þá málaflokka sem féllu innan EES-samningsins í fyrri viðræðunum, enda hafi þar að mestu verið um innleiðingu laga og reglna að ræða. Öðru máli hafi gegnt um mál sem vörðuðu mikilvægustu sérhagsmuni Íslands. Þar nefnir hann meðal annars sjávarútveg, landbúnað, byggðamál, dýra- og plöntuheilbrigði og fleiri málaflokka. Hann segir að undir lok árs 2012 hafi fátt bent til þess að Ísland væri að ná fram helstu samningsmarkmiðum sínum í þessum málum. Mikilvægustu kaflarnir hafi enn verið óopnaðir og þar hafi bilið milli Íslands og Evrópusambandsins verið mest. Steingrímur kveðst ekki hafa séð neitt sem bendi til þess að þessi staða hafi breyst verulega. Ekki vegna óvilja Fyrrverandi ráðherrann telur einnig að samningssvigrúm Evrópusambandsins sé takmarkað. Það sé ekki endilega vegna óvilja innan sambandsins heldur vegna þess að núverandi aðildarríki þurfi að samþykkja þær breytingar sem gerðar yrðu fyrir nýtt aðildarríki. Hann telur varanlegar undanþágur fyrir Ísland ólíklega niðurstöðu úr viðræðum en jafnframt að slíkar undanþágur séu forsenda þess að Íslendingar geti sætt sig við aðild. „Sjálfstæðið hafi reynst okkur vel“ Steingrímur bendir jafnframt á að Ísland standi framarlega á ýmsum mælikvörðum lífskjara og lífsgæða. Hann nefnir meðal annars kaupmátt, jöfnuð, jafnrétti, atvinnuþátttöku og lágt atvinnuleysi. Hann leggur áherslu á að Ísland sé jafnframt auðugt af náttúruauðlindum sem þjóðin hafi sjálf forræði yfir. „Ég fæ ekki betur séð en að sjálfstæðið hafi reynst okkur vel, sé í raun ein auðlindanna og því beri að fara afar varlega áður en sneiðar eru skornar af því,“ segir hann. Að mati Steingríms er það einnig mikilvægt að mistök Íslendinga hafi verið þeirra eigin og að sjálfstæðinu fylgi ábyrgð á því að taka afleiðingum þeirra og læra af þeim. Óttast að nýjar viðræður endi í pattstöðu Steingrímur segist hafa áhyggjur af því að nýtt aðildarferli gæti annaðhvort lognast út af eða endað með samningi sem íslensk þjóð hafni. Slík niðurstaða gæti, að hans mati, reynst verri en að hefja ferlið aldrei og leitt til erfiðra samskipta Íslands við Evrópusambandið um árabil. Í lok málflutnings síns vísar hann til reynslu Norðmanna og segir hana til marks um að skoða þurfi afleiðingar þess vandlega áður en lagt sé af stað í nýjar aðildarviðræður. Tengdar fréttir Ísland og ESB Ábati við ESB meiri en kostnaður Segir rauðu línuna dregna í auðlindum „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Beint streymi: Áfram Ísland fundar á Hvolsvelli „Þetta verður algjört skrímsli“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Lætur af störfum hjá KSÍ Eru með þyrluna tilbúna í Rifi Mikill viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Kölluðu lögreglu á vettvang Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Elta almyrkvann í 60.000 feta hæð Þjófur réðst á Jönu með piparúða: „Ég fríkaði út“ Fólk komist hraðar á milli staða Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þrír unnu sjö milljónir „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fölsk flögg í kosningabaráttu Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Nýjast á mbl.is » Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Lætur af störfum hjá KSÍ Eru með þyrluna tilbúna í Rifi Mikill viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Kölluðu lögreglu á vettvang Umræðan Þegar alþjóðalög duga ekki Evran, hamingjan og óttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjarskiptastofa minnir ferðalanga á tvö atriði Kölluðu lögreglu á vettvang Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi Endurtaka tilraun sem sannaði Einstein Mest lesið Í gær Í vikunni Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Lögreglan lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þrír unnu sjö milljónir „Þær ákvarðanir verða teknar í Brussel“ Fölsk flögg í kosningabaráttu Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Tjónið er altjón“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna