Heildarúthlutun aflamarks fyrir 2026 til 2027 er rúmlega 275 þúsund þorskígildistonn sem skiptast milli 308 skipa í eigu 260 félaga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fiskistofu. Fjögur félög fá nær 30% úthlutað – Samherji, Brim, Ísfélagið og FISK Seafood. Samherji fær 8,68% kvótans, Brim fær 7,76%, Ísfélagið fær 6,59% og FISK-Seafood fær 6,31%. Hæsta úthlutun á skip fær Sólberg ÓF 1 frá Ísfélaginu, sem fær rúmlega 10.000 þorskígildistonn, Guðmundur í Nesi RE 13 frá Útgerðafélagið Reykjavíkur fær næst mest, eða 8.648 þorskígildistonn og Þerney RE 1 frá Brimi fær 7.313 þorskígildistonn. Hvað er þorskígildistonn? Þorskígildi eða þorskígildistonn eru orð sem notuð eru til að bera saman afla af mismunandi tegundum sjávarfangs. Á Vísindavefnum segir : Þorskígildistonn er það aflamagn eða veiðikvóti af tiltekinni tegund sem telst jafnverðmætt og eitt tonn af þorski. Segjum að verðið á kílógrammi af þorski sé 150 krónur kílóið, kílóið af karfa kosti 75 krónur og kílóið af humri 750 krónur. Þá er tonnið af karfa hálft þorskígildistonn en tonnið af humri á hinn bóginn 5 þorskígildistonn; það jafngildir 5 tonnum af þorski. Skip sem er með 150 tonna kvóta í karfa hefur því þar með 75 þorskígildistonn en 10 tonna kvóti af humri er 50 þorskígildistonn. Úthlutun í þorski er rúm 158 þúsund þorskígildistonn en var tæp 160 þúsund þorskígildistonn á síðasta fiskveiðiári. Úthlutun í ýsu er rúm 41 þúsund þorskígildistonn og lækkar um 3 þúsund þorskígildistonn milli ára.