Kvótablað Fiskifrétta kemur nú út í tuttugasta og fjórða sinn. Í blaðinu er að finna upplýsingar um úthlutun aflaheimilda samkvæmt aflahlutdeild í upphafi fiskveiðiársins 2026/2027 og skiptingu milli útgerða og skipa. Birtur er listi yfir kvóta nær allra íslenskra skipa og báta og listi yfir 50 kvótahæstu útgerðir og kvóta eftir heimahöfnum. Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2026/2027. Úthlutunin fer fram með sama hætti og áður á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til 5,3% frádráttar fyrir jöfnunaraðgerðir. Heildarúthlutun Fiskistofu að þessu sinni í þorskígildistonnum er 275.747 tonn sem er 4.253 tonnum minna en við úthlutun fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 og 37.253 tonnum minna en við úthlutun fyrir fiskveiðiárið 2024/2025. Það dregur því úr magni sem kemur til úthlutunar þrjú kvótaár í röð. Leyfilegur heildarafli í þorski á nýhöfnu kvótaári er lítið eitt minni en á síðasta kvótaári, eða 199.285 tonn, en var 201.385 tonn 2025/2026. Leyfilegur heildarafli í ýsu er 61.371 tonn en var 77.312 tonn á síðasta fiskveiðiári. Fimm stærstu í þorskígildum Lítillega dregur úr hlutdeild fimm stærstu útgerða í heildarkvótanum sem fer úr 37,2% í 37,1%. Árið 2020 nam hlutdeild fimm stærstu útgerða í heildarkvótanum í þorskígildum 31,9%. Hlutdeildin hefur farið stighækkandi undanfarin ár og var komin í 35,8% árið 2023. Nú bregður svo við að hún lækkar lítillega og er sem fyrr segir 37,1%. Enn fremur hefur dregið allnokkuð úr hlutdeild tíu stærstu útgerðanna sem eru með 54% í heildarkvótanum en voru með 56,3% á síðasta kvótaári en 51,8% árið 2020. Tuttugu stærstu útgerðirnar eru með 72,5% í heildarkvótanum en voru með 76,3% á síðasta fiskveiðiári. 50 stærstu í þorskígildum Fimmtíu stærstu útgerðarfyrirtækin fá 92,2% af úthlutuðu aflamarki í þorskígildum. Þetta hlutfall var 93,4% á síðasta fiskveiðiári. Þar trónir efst Brim hf. með úthlutun upp á 27.526 tonn, Samherji Ísland ehf. með 23.902 tonn, FISK-Seafood ehf. með 18.907 tonn, Ísfélag hf. með 18.136 tonn og Vísir ehf. með 13.693 tonn. Netabáturinn Hafborg EA frá Grímsey. FF MYND/JÓN STEINAR SÆMUNDSSON 5 stærstu í þorski Fimm kvótahæstu útgerðir í þorski eru Samherji Ísland ehf., 15.838 tonn (9,99%), Brim hf., 11.472 tonn (7,24%), Ísfélag hf., 10.456 tonn (6,60%), FISK-Seafood, 9.985 tonn (6,30%) og Vísir ehf., 8.379 tonn (5,29%). Reykjavík sem fyrr með mest Þrjár heimahafnir skera sig úr eins og undanfarin ár, en skip sem gerð eru þaðan út fá töluvert meira úthlutað í þorskígildum talið en þær hafnir sem á eftir koma. Mest fer til skipa með heimahöfn í Reykjavík, eða 38.280 þorskígildistonn. Skip með heimahöfn í Grindavík fá úthlutað 33.247 þorskígildistonnum og Vestmannaeyjar 29.045 tonnum. Þetta er fimmta kvótaárið í röð sem Reykjavík er með mestu úthlutunina en á nokkurra ára tímabili þar á undan voru Vestmannaeyjar á toppnum.