Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir stöðu fyrstu kaupenda ekki fara versnandi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.8.2026 | 14:38 Segir stöðu fyrstu kaupenda ekki fara versnandi Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, á fundi HMS í morgun. mbl.is/Karítas Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ Kauptækifæri á fasteignamarkaði Beint: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði „Ég hef aðeins áhyggjur af því“ „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ » Fleiri tengdar fréttir Fyrstu kaupendum hefur ekki fækkað á húsnæðismarkaði að undanförnu, raunverð húsnæðis hefur farið lækkandi og mun það líklega halda áfram. Þá eru ekki merki um „frost“ á markaðnum né um að staða ungs fólks á leið inn á markaðinn fari versnandi. Þetta segir Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands. Tómas flutti erindi á haustfundi Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnunar í morgun þar sem staða mála á fasteignamarkaði var í brennidepli. Markaðurinn einkennist af offramboði Meðal þess sem Tómas fjallaði um var aðgengi að fasteignamarkaðnum. Segir hann fasteignamarkaðinn einkennast „fyrst og fremst af verulegu framboði“ og ekki síst þá vegna nýrra íbúða. Á næstu misserum líti þó allt út fyrir að hægja muni á byggingu nýrra íbúða. Þegar litið er til kaupsamninga segir Tómas að ekki megi sjá frost á markaðnum. Það sem af er ári eru kaupsamningar um 15% færri en á sama tíma í fyrra. Síðustu tvö ár hafi þó verið afar stór hvað þetta varðar og þá sérstaklega árið 2024 þegar um 3.000 manns þurftu að flytja frá Grindavík með tilheyrandi eftirspurn eftir húsnæði. „Samdráttur í eftirspurn er til staðar en það er frá mjög háu stigi og það er alls ekki að sjá af gögnunum að hér sé einhvers konar frost á markaðnum.“ Frá haustfundi HMS í morgun. mbl.is/Karítas Fyrstu kaupendur komast inn á markað Tómas segir margar sögur vera í gangi um ástandið á húsnæðismarkaði, meðal þeirra er að fyrstu kaupendur komist ekki inn á markaðinn. Hann segir tölfræðina þó alls ekki benda til þess, fyrstu kaupendum hafi ekki fækkað að undanförnu. Segir hann álíka marga komast inn á markaðinn á hverju ári og eru í hverjum árgangi. Bætir hann við að meðalaldur fyrstu kaupenda hafi samkvæmt tölulegum upplýsingum haldist óbreyttur og jafnvel lækkað lítillega. Staða ungs fólks fari líklega batnandi Í samtali við mbl.is eftir fundinn segir Tómas það koma sér á óvart hve margir fyrstu kaupendur séu að komast inn á markaðinn þrátt fyrir hátt verð og háa vexti. Nú sé fasteignamarkaðurinn kominn í ákveðið „aðlögunarferli“ sem geti tekið einhver ár. Offramboð á húsnæði og minni eftirspurn hafi leitt það af sér að raunverð húsnæðis sé að lækka og muni halda því áfram. „Þannig það er ekkert sem bendir til þess að staða ungs fólks til að komast inn á markaðinn muni endilega versna á næstu misserum, frekar að hún batni.“ „Fólk ætti alls ekki að líta á það þannig að markaðurinn sé lokaður, það er alls ekki þannig.“ Upptöku af fundinum í heild sinni má finna hér að neðan Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ Kauptækifæri á fasteignamarkaði Beint: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði „Ég hef aðeins áhyggjur af því“ „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tveir látnir í árás í skóla nálægt Berlín Frá Chelsea til Aston Villa Segir stöðu fyrstu kaupenda ekki fara versnandi Kántrígoðsögn hefur sungið sitt síðasta Áhugi ráðherra hefur áhrif á útkomuna Umræðan Trúin á Ísland Hvað er í pakkanum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fara fram á sex til tíu ára fangelsi Segir 517 útlendinga ófundna eftir mannskæð flóð ESB hafi mun meiri áhuga á Íslandi en árið 2009 „Vont mál fyrir alla þjóðina“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Styttir heimsókn sína til Íslands „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Brot á kjálka, nefbeini og rifbeinum „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Nýjast á mbl.is » Tveir látnir í árás í skóla nálægt Berlín Frá Chelsea til Aston Villa Segir stöðu fyrstu kaupenda ekki fara versnandi Kántrígoðsögn hefur sungið sitt síðasta Áhugi ráðherra hefur áhrif á útkomuna Umræðan Trúin á Ísland Hvað er í pakkanum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brot á kjálka, nefbeini og rifbeinum Verðbólgan sú mesta í tvö ár ESB hafi mun meiri áhuga á Íslandi en árið 2009 Yfir 1.300 manns er saknað Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Styttir heimsókn sína til Íslands „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Brot á kjálka, nefbeini og rifbeinum „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Loka

Share this article