Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

18 dönsk fyrirtæki sýna á IceFish

Read Full Article →

Átján dönsk fyrirtæki sýna á Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni, IceFish 2026, þar sem sjálfbær vöxtur, græn umskipti og hringrásarhagkerfið eru ofarlega á baugi. Fyrirtækin sýna saman í Danska skálanum og kynna lausnir úr allri virðiskeðju sjávarútvegs og fiskeldis, að viðbættum helstu styrkleikum Dana í vistvænum áherslum sem falla vel að lykilþemum sýningarinnar. „Við höfum tekið þátt í IceFish-sýningunum í mörg ár og komum sífellt aftur vegna þess að Ísland er mikilvægur markaður fyrir dönsk fyrirtæki. Hér geta þau kynnt vörur sínar og lausnir og hitt viðskiptavini og viðskiptafélaga,“ segir Martin Koefoed Lilleoere, yfirmaður fisktæknisviðs Danish Export, sem skipuleggur Danska skálann. Dönsku sýnendurnir spanna stóran hluta virðiskeðju sjávarútvegs og fiskeldis og helstu styrkleikar þeirra falla vel að meginþemum IceFish í ár, sem eru sjálfbær vöxtur, græn umskipti og hringrásarhagkerfið. Að breyta úrgangi í verðmæti Fyrirtækið RUNI sýnir nú í fyrsta skipti á IceFish, en það hefur þó fyrir löngu skapað sér nafn á Íslandi í gegnum samstarfsaðila sína hérlendis. RUNI sýnir á IceFish í samstarfi með Pure North Recycling, sem er í eigu Sigurðar Halldórssonar, umboðsaðila þess á Íslandi. Fyrirtækið mun kynna á IceFish þjöppu sína fyrir frauðpólýstýren (EPS), efni sem er mikið notað í fiskikassa í sjávarútvegi. Með því að þjappa notuðum EPS-fiskikössum tekur efnið umtalsvert minna pláss og hægt er að flytja það til endurvinnslu með skilvirkari hætti. Með lausn RUNI er hægt að minnka rúmmálið allt að fimmtíufalt. Þetta gerir flutninga ekki aðeins hagkvæmari heldur gerir einnig kleift að breyta notuðum umbúðum í verðmætt hráefni. „Við sjáum vaxandi eftirspurn eftir lausnum sem breyta úrgangi í verðmæti. Það er skynsamlegt bæði frá umhverfislegu og efnahagslegu sjónarmiði. Markmið okkar með því að sýna á IceFish er að mynda ný viðskiptasambönd við suma af helstu hagsmunaaðilum í sjávarútvegi og fiskeldi,“ segir Jens Kristian Kristensen, svæðissölustjóri hjá RUNI. Ný á IceFish – en ekki ný í greininni Ýmsir fleiri sýnendur í Danska skálanum eru líka að taka þátt í IceFish í fyrsta skipti. Eitt þeirra er Landia, fyrirtæki sem er þó þekkt nafn á Íslandi og á alþjóðamarkaði. Landia hefur um á árabil útvegað íslenskum viðskiptavinum sínum margvíslegan búnað á sviði fiskveiða og fiskeldis, enda býr það yfir langri og mikilli reynslu á því sviði. Landia mun sýna á IceFish nýuppfært vinnslukerfi fyrir fiskmeltu, sem felst í að vinna fisk og fiskúrgang í próteinmauk með þrautstýrðu og hreinlegu ferli. Kerfið uppfyllir fyllstu kröfur um líföryggi og dregur úr áhættu sem tengist meðhöndlun og geymslu á fiski. Möguleikar til að nýta próteinmaukið sem til verður velta á innlendum reglum og gæðum hráefnisins, en m.a. nýtist það í gæludýrafóður eða til frekari vinnslu til að endurheimta úr því prótein og lýsi. Landia hefur sterka stöðu í Noregi, þar sem fiskeldisfyrirtækjum er samkvæmt lögum skylt að nota búnað til að vinna dauðan fisk í meltu. Landia lítur á IceFish sem fyrirtaks tækifæri til að styrkja enn frekar stöðu sína á Íslandi sem og á öðrum mikilvægum alþjóðlegum mörkuðum fyrir fiskeldi og sjávarútveg. „Ísland er áhugaverður markaður og ég reikna með að hann muni verða okkur stöðugt mikilvægari eftir því sem fram líða stundir. Þar sem IceFish er einnig ákaflega alþjóðleg sýning vonumst við til að hitta mögulega viðskiptavini frá mörkuðum á borð við Kanada og Bandaríkin,“ segir Thorkild Maagaard, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Landia.

Share this article