Innlent | mbl | 27.8.2026 | 16:55 Segir framburð brotaþola óstöðugan Brotin átti sér stað í Reykholti í Biskupstungu. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Fara fram á sex til tíu ára fangelsi Brot á kjálka, nefbeini og rifbeinum Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu „Eins og jarðskjálfti færi í gegnum líkamann“ Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning » Fleiri tengdar fréttir Verjendur bræðranna Péturs Más Mortensen Birgissonar og Andra Más Mortensen Birgissonar kröfðust sýknu eða vægustu mögulegu refsinga yfir skjólstæðingum sínum í málflutningi í Reykholtsmálinu í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sveinn Guðmundsson, verjandi Péturs, sagði Pétur hafa verið ungan mann sem hefði komið seint inn í atburðarásina og verið kallaður inn í aðstæður sem aðrir hefðu skapað. Pétur hefði ekki verið viðstaddur þegar árásin á föstudagskvöldinu og aðfararnótt laugardags átti sér stað og hefði ekki vitað hvað hefði gengið á þegar hann kom að heimili brotaþola. Frétt af mbl.is Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Reyndi að komast úr aðstæðum Sveinn lagði áherslu á að Pétur hefði aðstoðað brotaþola eftir árásina, meðal annars útbúið svefnaðstöðu fyrir hann, gefið honum verkjalyf og vatn, hjálpað honum í sturtu og að einhverju leyti gert að sárum hans. Hann sagði Pétur einnig hafa ítrekað reynt að komast úr aðstæðunum en snúið aftur eftir að Andri hefði haft samband við hann. Hegðun hans bæri ekki merki þess að hann hefði tekið þátt í brotunum af fúsum og frjálsum vilja, heldur hefði hann verið fastur í aðstæðum og óttast bróður sinn. Sveinn vísaði jafnframt til þess að Pétur hefði verið greindur með áfallastreituröskun vegna málsins. Frétt af mbl.is Atburðir í móðu: „Hann átti bara að fara á spítala“ Þorgils Þorgilsson, verjandi Andra Más. mbl.is/Eggert Jóhannesson Krefst frávísunar Þorgils Þorgilsson, verjandi Andra, krafðist aðallega frávísunar málsins en til vara sýknu Andra eða vægustu mögulegu refsingar. Þorgils sagði för Andra til Reykholts upphaflega hafa snúist um innheimtu vangoldinnar leigu en að aðstæður hefðu síðan farið verulega úr böndunum. Hann vísaði meðal annars til þess að Andri hefði sjálfur sagt brotaþola hafa ráðist á sig með hníf og að hann hefði í kjölfarið orðið verulega hræddur og misst stjórn á sér. Frétt af mbl.is Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning Andri hefði verið að glíma við alvarlega kvíðaröskun Verjandinn sagði Andra glíma við alvarlega kvíðaröskun og að þetta mætti meðal annars heyra á hljóðupptökum úr síma hans. Því væri ekki unnt að taka allt sem Andri segði á upptökunum sem marktækan framburð. Þorgils gagnrýndi jafnframt rannsókn lögreglu og sagði framburð brotaþola um atburðarásina hafa verið óstöðugan og margsaga. Hann benti meðal annars á misræmi í frásögnum hans um hversu margir hefðu verið á vettvangi, hvort hann hefði verið bundinn, og þá hvort það hafi verið á höndum eða fótum, og hver hefði beitt hann ofbeldi og hvernig. Þá gagnrýndi hann rannsókn á áverkum brotaþola og sagði ekki hafa verið sýnt fram á að tilteknir áverkar, meðal annars tanntap og brot, tengdust árásinni með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Frétt af mbl.is Fara fram á sex til tíu ára fangelsi Rannsóknin ekki nægilega góð Þorgils sagði rannsókn málsins að ýmsu leyti ábótavant. Sagði hann lögreglu svo gott sem hafa hætt að rannsaka málið þegar upptökur fundust á síma Andra og talið að það væri nóg. Benti Þorgils aukinheldur á að brotaþoli hefði eytt rúmum fjórtán klukkustundum í París þegar flugvél hans millilenti þar á leið sinni til Möltu. Það stangaðist á við framburð brotaþola sem sagðist hafa eytt um tveimur klukkustundum í París og gagnrýndi Þorgils á ný vinnubrögð lögreglunnar varðandi rannsókn málsins, þ.e. að hafa ekki skoðað þann vinkil nánar. Við mat á refsingu benti Þorgils á að Andri væri í dag fjölskyldumaður í fullu starfi og að horfa þyrfti til þess að hann hefði ekki verið á sakaskrá áður en Reykholtsmálið kom upp. Málflutningur verjanda annarra sakborninga í málinu heldur áfram á morgun og má búast við að dæmt verði í málinu eftir 4–6 vikur. Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Fara fram á sex til tíu ára fangelsi Brot á kjálka, nefbeini og rifbeinum Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu „Eins og jarðskjálfti færi í gegnum líkamann“ Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Segir framburð brotaþola óstöðugan Þýskur landsliðsmaður til Aston Villa Lést þegar hann reyndi að stöðva árásina Beint: Já til að sjá í Tónabíó Beint: Áfram Ísland á Austurvelli Umræðan Trúin á Ísland Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir framburð brotaþola óstöðugan Pútín gæti ráðist inn í Eystrasaltsríkin Verðbólgan sú mesta í tvö ár Fara fram á sex til tíu ára fangelsi Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Styttir heimsókn sína til Íslands „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Brot á kjálka, nefbeini og rifbeinum Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Nýjast á mbl.is » Segir framburð brotaþola óstöðugan Þýskur landsliðsmaður til Aston Villa Lést þegar hann reyndi að stöðva árásina Beint: Já til að sjá í Tónabíó Beint: Áfram Ísland á Austurvelli Umræðan Trúin á Ísland Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Jákvætt merki að sjá lundapysjur í borginni Pútín gæti ráðist inn í Eystrasaltsríkin „Þetta er risastór grafreitur“ „Höfum ekki efni á því að gefast upp“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Styttir heimsókn sína til Íslands „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Brot á kjálka, nefbeini og rifbeinum Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Loka