Innlent | mbl | 21.8.2026 | 13:09 Vissi að brotaþoli ætti milljónir Þá minntist vinnuveitandinn þess að brotaþoli hefði sagt við sig fyrir árásina að Sigurður hefði séð bankareikning hans og væri því meðvitaður um að brotaþoli ætti rúmar 20 milljónir. mbl.is/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Skýrslutökur halda áfram í Reykholtsmálinu Ágreiningur um leiguskuld í Reykholtsmálinu „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? » Fleiri tengdar fréttir Andri Már Mortensen Birgisson, einn sakborninga í Reykholtsmálinu, hafði komið einn að heimili palestínska mannsins skömmu fyrir árásina árið 2024 og reynt að fá hann með sér í hraðbanka. Þá virðist hafa legið fyrir að Sigurður Gunnar Ásgeirsson, tengdafaðir Andra og annar sakborningur, hafi vitað að maðurinn ætti tæpar 20 milljónir króna á bankareikningi sínum. Þetta kom fram í vitnisburði vinnuveitanda brotaþola fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag. Frétt af mbl.is Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? Hafði aðeins einu sinni misst úr vinnu Vinnuveitandinn lýsti brotaþola jafnframt sem fyrirmyndarstarfsmanni sem hefði unnið hjá fyrirtækinu frá árinu 2021 og aðeins einu sinni misst úr vinnu. Að sögn vinnuveitandans vöknuðu grunsemdir hans um að eitthvað óvenjulegt væri í gangi þegar brotaþoli mætti ekki til vinnu á mánudeginum eftir helgina þar sem meint árás átti sér stað. Kvaðst hann fyrir dómi hafa fengið SMS-skilaboð frá brotaþola á mánudeginum sem þótti óvenjulegt þar sem þeirra fjarsamskipti hefðu alltaf farið í gegnum Whatsapp eða Messenger. Þegar brotaþoli hafi svo ekki mætt til vinnu á þriðjudeginum hafi vinnuveitandinn, ásamt eiginkonu sinni, ekið að heimili brotaþola og séð þar leigjanda brotaþola og einn sakborninganna, Sigurð Gunnar Ásgeirsson. Frétt af mbl.is Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Frá Reykholti. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður virtist ólíkur sjálfum sér Fyrir dómi kom fram að Sigurður hefði einnig eitt sinn unnið hjá sama fyrirtæki og brotaþoli og yfirmaðurinn, einmitt eftir að hafa fengið meðmæli frá brotaþola, og var því yfirmanninum kunnugt um þeirra samband. Fyrir dómi sagði vinnuveitandinn Sigurð hafa virst ólíkan sjálfum sér og að hann hefði brugðist undarlega við þegar hann spurði um brotaþola. Sigurður hafi hins vegar neitað fyrir að hafa séð brotaþola um helgina. Frétt af mbl.is „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Var brotaþola innan handar Vinnuveitandinn og eiginkona hans hófu í kjölfarið leit að brotaþola og höfðu samband við fólk í kringum hann, þar á meðal dóttur hans á Möltu sem síðar hafði samband við yfirmanninn um að faðir hennar hefði fundist illa farinn á Möltu og tilkynnti yfirmaðurinn í kjölfarið lögreglu um málið. Fram kom í vitnisburði vinnuveitandans að hann hefði nokkrum mánuðum fyrir árásina verið að aðstoða brotaþola við að leita að nýju húsnæði vegna þeirra hugmynda Sigurðar um að nota húsnæði sitt fyrir Airbnb og þar af leiðandi vísa brotaþola á dyr. Auk þess var vinnuveitandanum kunnugt um leigudeilur Sigurðar og brotaþola og hafði verið að aðstoða brotaþola í þeim efnum. Þá minntist vinnuveitandinn þess að brotaþoli hefði sagt við sig fyrir árásina að Sigurður hefði séð bankareikning hans og væri því meðvitaður um að brotaþoli ætti rúmar 20 milljónir. Tengdasonur Sigurðar, Andri, hafi svo mætt einn að heimili brotaþola stuttu fyrir árásina og reynt að fá brotaþola með sér í hraðbanka án árangurs. Brotaþoli enn að jafna sig Aðspurður kvaðst vinnuveitandinn ekki geta fullyrt að samtalið við brotaþola, um að Sigurður hefði séð bankareikning sinn, hefði átt sér stað fyrir árásina og nefndi í því samhengi að liðin væru tæp tvö og hálft ár síðan. Hann kvaðst þó vera nokkuð viss um að samtalið hefði átt sér stað fyrir árásina og vísaði til fyrri vitnisburðar síns hjá lögreglu. Minntist vinnuveitandinn jafnframt á að hann og brotaþoli hefðu rætt um að tilkynna heimsókn Andra til lögreglu. Þess ber að geta að í vitnisburði vinkonu Sigurðar og eiginkonu hans, sem hafði átt í samskiptum við Sigurð umrædda helgi, minntist þess fyrir dómi í dag að Sigurður hefði talað um að brotaþoli ætti 20 milljónir sömu helgi og árásin fór fram. Brotaþoli er enn starfsmaður fyrirtækisins. Vinnuveitandinn sagði hann hafa snúið aftur til vinnu tiltölulega fljótt eftir atvikið en hann væri enn að jafna sig bæði líkamlega og andlega, ætti meðal annars erfitt með að borða og hefði lengi átt erfitt með að lyfta þungum hlutum. Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Skýrslutökur halda áfram í Reykholtsmálinu Ágreiningur um leiguskuld í Reykholtsmálinu „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » 210 milljónir hafa safnast: „Frábært hlaupaveður“ Vissi að brotaþoli ætti milljónir Faxaflóahafnir reisa nýjar höfuðstöðvar Reykjavík Marathon nearly sold out Theodór Elmar og Móheiður mættu í Hannesarholt Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Að múra sig inni þegar heimurinn stendur opinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vissi að brotaþoli ætti milljónir Sjávarafurðir 40% af útflutningi Vill ekki lengur ganga í ESB Watson-samtökin krefja ráðherra um úttekt Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Refir gerast ágengir fyrir norðan Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Meta möguleika á leit að Lúðvík Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Nýjast á mbl.is » 210 milljónir hafa safnast: „Frábært hlaupaveður“ Vissi að brotaþoli ætti milljónir Faxaflóahafnir reisa nýjar höfuðstöðvar Reykjavík Marathon nearly sold out Theodór Elmar og Móheiður mættu í Hannesarholt Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Að múra sig inni þegar heimurinn stendur opinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill ekki lengur ganga í ESB Sjávarafurðir 40% af útflutningi Meta möguleika á leit að Lúðvík „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Refir gerast ágengir fyrir norðan Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Meta möguleika á leit að Lúðvík Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar