Innlent | Morgunblaðið | 27.8.2026 | 17:30 Sláturfé fækkar um 10-15.000 milli ára Senn verður farið á fjall og sauðféð rekið úr sumarhögum þar. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Afurðaverð til sauðfjárbænda fyrir hvert innvegið kíló af kindakjötsskrokkum hækkar um 4,9% milli ára. Bændur eru nú að stimpla sig inn hjá sláturhúsunum og bóka hve margt fjár þeir fara með til slátrunar. Algengt kílóverð til bænda nú í upphafi sláturtíðar er um 1.120 kr., en svo koma til ýmsar sérgreiðslur og fyrirvarar. Um þetta efni er fjallað á vef Bændasamtaka Íslands. Þar segir að erfitt sé að meta áhrif þess að afurðastöðvar á Norður- og Austurlandi hætti yfirborgun á skrokka undir 13,5 kg. Sama á við um áhrif lægra verðs á kjöt af fullorðnu fé hjá Sláturfélagi Suðurlands í október. Raunveruleg breyting á tekjum einstakra búa getur því orðið önnur en almenn hækkun verðskrár gefur til kynna. Reiknuð hækkun miðað við innlegg ársins 2025, að teknu tilliti til uppbótar á afurðaverð sem greidd var fyrri hluta árs 2026, er 1,4% í dilkakjöti og 2,1% fyrir kjöt af fullorðnu fé. Almennt sé hækkunin nú í samræmi við verðlagsþróun. Allt á fullu í fyrra í sláturhúsi Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki. Ein stærsta afurðastöð landins enda í stóru landbúnaðarhéraði. mbl.is/Páll Friðriksson Aðfangaverð hækkar „Sauðfjárbændur standa í rekstri sínum nú andspænis mikilli óvissu. Afurðaverð hækkar lítið eitt, en á sama tíma verður aðfangakostnaður meiri vegna óstöðugs ástands í heimsmálum. Við það bætist óvissa um starfsumhverfi íslensks landbúnaðar, svo sem ef valið verður að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið,“ segir Eyjólfur Ingvi Bjarnason, formaður deildar sauðfjárbænda í Bændasamtökum Íslands, og heldur áfram: „Aðföng sem bændur þurfa í rekstur sinn eru til dæmis eldsneyti, áburður, plast, flutningar og fjölmargt annað sem tengist orkuverði með beinum eða óbeinum hætti. Vísbendingar eru um að nú sé hækkun á þessum vörum hafin og fyrir því eru sauðfjárbú sérstaklega viðkvæm. Framleiðsluferlið er langt og bændur eru ekki í sérstökum færum til að bregðast hratt við breyttum rekstrarskilyrðum. Ákvarðanir um framleiðslu eru teknar löngu fyrir sölu afurða og kostnaður myndast oft löngu áður en fyrir liggur hvert afurðaverð að hausti verður. Þessum veruleika verður ekki breytt.“ Sauðfjársláturhús landsins eru Fjallalamb á Kópaskeri, Norðlenska á Húsavík, Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki, Sláturfélag Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga og SS á Selfossi. Þá eru lítil handverkssláturhús í Borgarnesi og á Vopnafirði. Áætlað er að slátra í haust um 375 þúsund dilkum, það er fé fæddu í vor, sem er fækkun um 10 þúsund milli ára. Þá verður slátrað um 40.00 fullorðnum kindum. „Fækkun sláturfjár í haust frá í fyrra verður 10-15 þúsund milli ára,“ segir segir Eyjólfur Ingvi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Áfall fyrir Selfyssinginn Ástand Haraldar konungs óbreytt Frumsýna tvo nýja rafbíla í túninu heima Sláturfé fækkar um 10-15.000 milli ára Borac – Víkingur kl. 18.30, bein lýsing Umræðan Trúin á Ísland Hvað er í pakkanum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir framburð brotaþola óstöðugan „Þetta er risastór grafreitur“ Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Eigum alls ekki að fara í aðildarviðræður Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Styttir heimsókn sína til Íslands „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Brot á kjálka, nefbeini og rifbeinum Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Nýjast á mbl.is » Áfall fyrir Selfyssinginn Ástand Haraldar konungs óbreytt Frumsýna tvo nýja rafbíla í túninu heima Sláturfé fækkar um 10-15.000 milli ára Borac – Víkingur kl. 18.30, bein lýsing Umræðan Trúin á Ísland Hvað er í pakkanum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Icelandair-vél lenti í Boston af öryggisástæðum „Þetta er risastór grafreitur“ Fara fram á sex til tíu ára fangelsi Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Styttir heimsókn sína til Íslands „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Brot á kjálka, nefbeini og rifbeinum Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Loka