Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hein­emann tapaði 760 milljónum á opnunarári

Read Full Article →

Heinemann Travel Retail Iceland ehf., sem rekur fríhafnaverslanir á Keflavíkurflugvelli, hefur skilað inn sínum fyrsta ársreikningi. Félagið tapaði 766 milljónum króna á sínu fyrsta rekstrarári en þess ber að geta að félagið tók við verslununum í maí 2025. Fyrirtækið segir að umfangmiklar fjárfestingar í starfseminni hafi litað fyrsta rekstrarárið. Reksturinn sé í dag kominn í plús. Félagið var stofnað árið 2025 og hóf formlegan rekstur þann 7. maí 2025 undir vörumerkinu Ísland Duty Free en þá var skipt um rekstraraðila fríhafnarinnar eftir alþjóðlegt útboðsferli og undirritun langtímasamnings milli Isavia og Heinemann Travel Retail Iceland ehf. Í tilkynningu segist Heinemann hafa fjárfest í endurbætum á verslunarrýmum í Leifsstöð fyrir tugi milljóna evra. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í næsta mánuði. „Umfangsmiklar endurbætur á verslunarrýmum á Keflavíkurflugvelli hófust í ágúst 2025 og kröfðust verulegrar fjárfestingar hér á landi. Breytingarnar ásamt endurhönnun á verslununum eru þær viðamestu sem gerðar hafa verið á fríhafnarverslun í Keflavík frá upphafi og ein stærsta fjárfesting í ferðaþjónustuverslun á Íslandi á síðari árum.“ Sjá einnig Hein­emann tekur við Fríhöfninni á mið­viku­daginn Þegar komin í hagnað Heildartekjur félagsins árið 2025 námu 8.167 milljónum króna en tap ársins var 769 milljónir króna. Heildareignir í árslok námu 3.265 milljónum króna og eigið fé var neikvætt um 750 milljónir. Heinemann segir að verulegar fjárhæðir hafi einnig farið í að breyta rekstrinum úr opinberum rekstri yfir í einkarekstur en innleiða þurfti ný kerfi og lausnir „til að tryggja sjálfbæran og farsælan rekstur á Íslandi“. „Í upphafi breytinganna urðu smávægilegar tafir sem leiddu til þess að tekjur félagsins fyrir árið 2025 eru undir áætlunum. Fyrirtækið er þegar komið í hagnað og hefur fulla trú á því að breytingarnar muni skila betri og arðbærari rekstri í framtíðinni. Þrátt fyrir neikvætt eigið fé í árslok 2025 leikur enginn vafi á rekstrarhæfi félagsins,“ segir Liam Grundy , framkvæmdastjóri Ísland Duty Free. Flestir starfsmenn héldu áfram störfum Meðalfjöldi starfsmanna í fullu starfi (e. FTE) á árinu var 137,56 en flestir fyrrum starfsmenn Isavia í fríhöfninni héldu áfram störfum, að því er segir í tilkynningunni. Fjöldi starfsmanna í fullu starfi í lok tímabilsins var 129,74. © Aðsend mynd (AÐSEND)

Share this article