Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Heiður okkar kynslóðar

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 29.8.2026 | 6:00 Heiður okkar kynslóðar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Við Íslendingar tökumst á um allt mögulegt. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að við upplifum okkur sem eina þjóð, einn hóp, eina fjölskyldu, sem stendur saman þegar á reynir. Satt best að segja átti ég ekki von á því að nú, aðeins fáeinum árum eftir að við Íslendingar unnum stórkostlega sigra gegn ofurefli á grundvelli fullveldisréttar okkar, skyldum við lenda í átökum um hvort við ættum að eftirláta erlendri stofnun valdið sem hafði reynst okkur svo vel. Eftirláta embættismönnum ESB að fara með það vald sem Íslendingar börðust fyrir um aldir. Sama Evrópusambandi og tók ákvarðanir um að beita sér gegn hagsmunum Íslands þegar mest lá við, í einmitt þeim málum þar sem fullveldið tryggði okkur sigur að lokum. Eitt hefur mér gramist meira en annað á þeim árum sem ég hef starfað í stjórnmálum. Það er hversu erfiðlega getur gengið að læra af reynslunni. Það hversu mikill kraftur og tími stjórnmálabaráttunnar fer í að verja hið góða, allt það sem hefur sannað gildi sitt og gagnsemi. Í það fara kraftar sem gætu nýst til að byggja á grunni reynslunnar og þess sem virkar og nýta þannig endalaus tækifæri Íslands. Tími og vinna sem fer í vörn fer ekki í sókn. Mistök eru eðlileg og óhjákvæmileg. Mikilvægust er getan til að læra af þeim. Fyrirsjáanleg mistök eru hins vegar óþolandi og allt of tíð. Mistök sem eru gerð þegar staðreyndirnar liggja fyrir og skynsamt fólk getur gefið sér hverjar afleiðingarnar verða. Slík mistök hafa verið of tíð á liðnum árum. Í flestum tilvikum getum við þó reynt að bæta fyrir mistökin vegna þess að við ráðum okkar málum sjálf. Kjósendur geta, ef þeir vilja, breytt stefnunni. Skipt út þeim sem ekki hafa staðið sig fyrir þá sem þeir telja líklegri til að ná árangri. Það er afleiðing fullveldis og lýðræðis. Tveggja óaðskiljanlegra hluta. Fullveldi styðst við þá sannfæringu að þjóðir eigi að ráða sér sjálfar. Þ.e. að borgararnir sem tilheyra ákveðinni þjóð ráði málum þeirrar þjóðar. Hafa einhverjir misst þá sannfæringu? Eru þeir vaklandi í trúnni á fullveldið og lýðræðið? Slíkt fyrirkomulag er að vísu alls ekki sjálfgefið. Það heyrir raunar til undantekninga í mannkynssögunni. Þó hafði innan við 100.000 manna sárfátæk þjóð í harðbýlu landi sannfæringu fyrir því að hún ætti að verða sjálfstæð og ráða sínum málum sjálf. Það var á tíma þegar langflestar þjóðir lutu stjórn fáeinna stórvelda og valdakerfis þeirra. Margir urðu til að benda á að þetta væri fullkomlega óraunhæft. Íslandi væri best borgið sem skjólstæðingur stærra ríkis og reynds stjórnkerfis sem gæti haft vit fyrir hinum fáu Frónbúum. Það kemur mörgum okkur á óvart að slík viðhorf skuli nú aftur skjóta upp kollinum eftir að trúin á fullveldið hafði sannað sig og skilað hinu litla sjálfstæða Íslandi í fremstu röð á heimsvísu. Þessar efasemdir eru enn undarlegri í ljósi nýliðinna ára þar sem fullveldisrétturinn gerði okkur kleift að vinna mikla sigra og taka ákvarðanir á okkar forsendum og út frá okkar aðstæðum á meðan Evrópusambandið hrökklaðist úr einni krísunni í aðra og stendur nú frammi fyrir hnignunarspíral. Við getum þó glaðst yfir því að fá tækifæri til að leggja okkar af mörkum til að verja fullveldið og skila því áfram til næstu kynslóða. Til þess þurfum við ekki að ganga í gegnum neitt í líkingu við það sem forverar okkar þurftu að gera. Við þurfum bara að mæta á kjörstað í dag og segja nei. Þannig endurómum við fræg orð Jóns Sigurðssonar sem stóð frammi fyrir tilboði danskra stjórnvalda um að Ísland yrði formlega hluti af Danmörku gegn því að fá „sæti við borðið“, sex sæti á danska löggjafarþinginu: „Vér mótmælum allir.“ Við skulum ekki vera kynslóðin sem missti trúna og glutraði niður því sem forverar okkar færðu ómældar fórnir til að gefa okkur. Það er hlutverk okkar að skila því áfram til næstu kynslóða. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Draumabrúðkaup Jann Arden og Þórdísar Elvu Aðsend grein: Heiður okkar kynslóðar Stór borgarísjaki við Vestfirði Allt annað en sátt við vinnubrögð Víkings Franska stjarnan komin til Liverpool Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Í hvort skiptið var verið að blöffa?“ „Sendir okkur bara enn þá frekari hvatningu“ Þung staða á markaðnum Titringur á lokametrum baráttunnar Mest lesið Í gær Í vikunni „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Tölfræði ráðherra um lambakjöt röng Hnífjafnt í síðustu könnuninni Stór borgarísjaki við Vestfirði Augu heimspressunnar beinast að Íslandi Hélt að hún myndi segja já – en snerist hugur Gefur nú grænt ljós á hótelíbúðir Vél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak „Getur verið að fjármunirnir stoppi í kerfinu?“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Alvarlegar afleið­ingar fyrir hestinn Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brynjar nýr formaður stjórnar Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Titringur á lokametrum baráttunnar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín Vél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu Nýjast á mbl.is » Draumabrúðkaup Jann Arden og Þórdísar Elvu Aðsend grein: Heiður okkar kynslóðar Stór borgarísjaki við Vestfirði Allt annað en sátt við vinnubrögð Víkings Franska stjarnan komin til Liverpool Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Metþátttaka utan kjörfundar: Röð út á bílastæði Þúsund íslenska skriffinna þyrfti „Sendir okkur bara enn þá frekari hvatningu“ Alvarlegar afleið­ingar fyrir hestinn Mest lesið Í gær Í vikunni „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Tölfræði ráðherra um lambakjöt röng Hnífjafnt í síðustu könnuninni Stór borgarísjaki við Vestfirði Augu heimspressunnar beinast að Íslandi Hélt að hún myndi segja já – en snerist hugur Gefur nú grænt ljós á hótelíbúðir Vél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak „Getur verið að fjármunirnir stoppi í kerfinu?“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Alvarlegar afleið­ingar fyrir hestinn Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brynjar nýr formaður stjórnar Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Titringur á lokametrum baráttunnar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín Vél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu

Share this article